Hljómsveitin The Cranberries var saman komin í London til að sinna stuttu upptökuferli í hljóðveri en dánarorsök söngkonunnar liggur ekki fyrir.
Seldu 40 milljónir platna
O´Riordan gekk til liðs við The Cranberries árið 1989 eftir að hafa séð auglýsingu í staðarblaði að hljómsveitina vantaði söngkonu. Bræðurnir Noel Hogan og Mike Hogan höfðu stofnað sveitina sem endaði á að selja rúmlega fjörutíu milljónir platna á heimsvísu með O´Riordan fremsta í flokki.
The Cranberries gáfu út nokkur gríðarlega vinsæl lög á sínum tíma. Þeirra vinsælasta lag er án efa lagið Zombie en hér að neðan má hlusta á fjögur þekktustu lög sveitarinnar.
Um er að ræða lögin Zombie, Linger, Dream og Ode To My Family.