Sjáðu þennan unga fótboltastrák nýta tækifærið og næla sér um leið í smá heimsfrægð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. ágúst 2018 23:00 Strákurin fagnar marki sínu. Mynd/Skjáskot
Ungur fótboltastrákur gerði aðeins meira en var ætlast til af honum í leik Olympique Marseille og Rennes í franska fótboltanum í gær. Strákurinn fékk þann heiður að taka upphafssparkið í leiknum eins og venja er í Frakklandi en hann átti bara að senda boltann á næsta mann. Strákurinn nýtti sér aftur á móti tækifærið til að skora mark á Orange Vélodrome leikvanginum í Marseille. Hann lék upp allan völlinn og skoraði í markið framhjá markverði Rennes. Sýningunni var þó ekki lokið. Áhorfendur fögnuðu markinu vel en þá fagnaði strákurinn með tilþrifum og reif sig meira segja úr treyjunni. Þetta allt má sjá hér fyrir neðan.This young fan was only supposed to take the ceremonial kick-off in Marseille... Instead, he ran the length of the pitch, scored a goal and celebrated in style. pic.twitter.com/Kny4Suc2Sn — ESPN FC (@ESPNFC) August 27, 2018Hann fékk því ekki aðeins að skora fyrir framan meira en fimmtíu þúsund manns heldur krækti hann einnig í smá heimsfrægð enda hefur þetta myndband farið sína leið á samfélagsmiðlum í kjölfarið. Hvort sem að það var stráknum að kenna þá voru leikmenn Olympique Marseille eitthvað sofandi framan af leik og voru komnir 2-0 undir í hálfleik. Olympique Marseille náði hinsvegar að tryggja sér stig með tveimur mörkum í seinni hálfleiknum. Það er ekki búist við því að stráknum verði boðið aftur að taka upphafsspyrnuna í leik.
Fótbolti Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Meiddist í Portúgal Enski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Arnar situr fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Gylfi með til Eistlands Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ „Þetta er bara víti og rautt spjald“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Sjáðu mörkin úr slátrun Englands FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Modric skammast sín Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Strákarnir sitja fastir Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Sjá meira