Fótbolti

Rosenborg norskur bikarmeistari

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Matthías Vilhjálmsson kom ekki við sögu í bikarúrslitaleiknum í dag.
Matthías Vilhjálmsson kom ekki við sögu í bikarúrslitaleiknum í dag. visir/getty
Norska stórveldið Rosenborg er tvöfaldur meistari í Noregi eftir stórsigur á Strömsgodset í bikarúrslitaleik á Ullevaal í Osló í dag.

Matthías Vilhjálmsson sat allan tímann á varamannabekk Rosenborg og horfði á félaga sína leika á als oddi.

Leiknum lauk með 4-1 sigri Rosenborg þar sem Nicklas Bendtner skoraði tvö mörk en Mike Jensen og Anders Konradsen voru einnig á skotskónum eftir að Mostafa Abdellaoue hafði komið Stromsgödset yfir snemma leiks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×