Fótbolti

Ingibjörg á skotskónum í sigri Djurgarden

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ingibjörg Sigurðardóttir skoraði í dag
Ingibjörg Sigurðardóttir skoraði í dag Vísir/Getty
Íslensku landsliðskonurnar Guðbjörg Gunnarsdóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir voru á sínum stað í liði Djurgarden og léku allan leikinn þegar liðið fékk Vaxjo í heimsókn í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Ingibjörg gerði sér lítið fyrir og kom Djurgarden yfir eftir sextán mínútna leik og skömmu síðar tvöfaldaði Irma Helin forystuna.

Guðbjörg stóð venju samkvæmt á milli stanganna og hélt marki sínu hreinu. Lokatölur því 2-0 fyrir Djurgarden sem er í 7.sæti af 12 liðum í sænsku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×