Fótbolti

Rene skoraði fyrir Færeyinga

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Rene spilar fyrir lið Grindavíkur í Pepsi deild karla
Rene spilar fyrir lið Grindavíkur í Pepsi deild karla vísir/daníel
Rene Joensen, Gunnar Nielsen og Kaj Leo í Bartalstovu voru allir í eldlínunni þegar Færeyjar unnu Möltu í Þjóðadeildinni í kvöld.

Rene, sem spilar með Grindavík í Pepsi deild karla, skoraði eitt marka Færeyinga í 3-1 sigri á Möltu í Þórshöfn.

Hallur Hansson og Joan Simun Edmundsson gerðu hin mörk Færeyinga.

Artem Dzyuba tryggði Rússum sigur á Tyrkjum í leik liðanna í Tyrklandi.

Denis Cheryshev hafði komið Rússum yfir snemma leiks en Serdar Aziz jafnaði metin áður en blásið var til hálfleiks. Dzyuba skoraði svo sigurmarkið á 49. mínútu.

Úrslit dagsins í Þjóðadeildinni:

A deild:

Ítalía - Pólland 1-1

B deild:

Tyrkland - Rússland 1-2

C deild:

Albanía - Ísrael 1-0

Litháen - Serbía 0-1

Rúmenía - Svartfjallaland 0-0

D deild:

Aserbaísjan - Kósóvó 0-0

Færeyjar - Malta 3-1




Fleiri fréttir

Sjá meira


×