Fótbolti

Tryggvi og Höskuldur áfram en Andri Rúnar og Alfons úr leik

Anton Ingi Leifsson skrifar
Tryggvi er kominn áfram með Halmstads.
Tryggvi er kominn áfram með Halmstads. vísir/heimasíða halmstad
Höskuldur Gunnlaugsson, Tryggvi Rafn Haraldsson og félagar í Halmstads eru komnir áfram í sænska bikarnum eftir 2-0 sigur á Saevedalens.

Höskuldur spilaði fyrri hálfleikinn en Tryggvi allan leikinn. Hann fékk tækifæri til að koma Halmstads yfir í fyrri hálfleik en markvörður Saevedalens varði glæsilega.

Andri Rúnar Bjarnason og félagar eru úr leik eftir tap gegn C-deildarliði Eskilsminne, 1-0, á útivelli. Andri Rúnar spilaði síðustu 25 mínúturnar fyrir Helsingborg.

Alfons Sampsted, sem er á láni hjá Landskrona, var í tapliði Landskrona sem tapaði 2-0 fyrir FC Rosengård á útivelli en um grannaslag var að ræða.

Rosengård er í sænsku D-deildinni á meðan Landskrona er í botnbaráttunni í B-deildinni svo mikill skellur fyrir Alfons og félaga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×