Fótbolti

Emil baðst afsökunar á markinu: „Held ég hafi ekki misst boltann fyrir utan þetta“

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Emil í leiknum í Rostov í kvöld
Emil í leiknum í Rostov í kvöld vísir/vilhelm
Emil Hallfreðsson var valinn maður leiksins í íslenska liðinu í tapinu fyrir Króatíu í kvöld þar sem Ísland datt úr leik á HM í Rússlandi. Hann baðst afsökunar á því að hafa misst boltann undir lokin sem leiddi til sigurmarks Króata.

„Mér leið ekki vel þegar það gerðist,“ sagði Emil við Henry Birgi Gunnarsson í Rostov eftir leikinn. „Áttaði mig ekki alveg á þessu, fannst ég vera með hann og var búinn að vera með hann allan leikinn. Held ég hafi ekki misst boltann allan leikinn fyrir utan þetta.“

„Auðvitað svekkjandi að missa hann þarna en ég get hrósað Perisic líka fyrir ágætis slútt. Sorrý.“

„Þetta er mjög pirrandi og ég er alveg að hugsa um þetta, en svona er bara fótboltinn. Ef þú tekur enga sénsa þá kemstu ekkert áfram. Minn stíll er svona, ég vil spila boltanum.“

Króatar gerðu níu breytingar á byrjunarliði sínu fyrir leikinn en þeir voru öruggir áfram. Emil sagði það ekki endilega hafa hjálpað íslenska liðinu.

„Vissum að þeir myndu hvíla nokkra en það var ekkert betra þannig séð. Þeir komu inn með ferskar lappir og voru með Modric ennþá sem er í heimsklassa. Þetta var alltaf að fara að vera erfiður leikur en við sköpuðum okkur helling í dag.“

„En ég held við getum borið höfuðið hátt eftir þessa keppni samt sem áður.“

Argentína vann eins marks sigur á Nígeríu sem þýðir að ef Ísland hefði átt sigurmarkið en ekki Króatía hefðu það verið Íslendingar sem fylgdu Króötum í 16-liða úrslitn. Gerir sú staðreynd þessi úrslit meira svekkjandi?

„Já, algjörlega. Það gerir þetta meira svekkjandi. Við reyndum að liggja á þeim í endan og vorum opnari en við reyndum eins og við gátum. Vorum orðnir smá þreyttir í endan sem var eðlilegt, en því miður fór þetta eins og þetta fór.“

Emil var að lokum spurður að því hvort hann myndi spila annað stórmót fyrir Ísland eða hvort hann væri farinn að hugsa um það að hætta?

„Ég er enn í hörku standi svo ég er ekki að pæla í neinu. Er ekki EM eftir 2 ár? Þjóðardeild og svo er Evrópukeppni, ég er ekkert að pæla í því að hætta. Samt eðlileg spurning og allt í góðu,“ sagði nokkkuð léttur Emil Hallfreðsson.


Tengdar fréttir

Einkunnir Íslands: Emil bestur í kvöld

Venju samkvæmt gefur Vísir leikmönnum íslenska landsliðsins einkunn fyrir frammistöðu sína á HM. Það voru margir frábærir á vellinum í kvöld.

Gylfi: Við viljum halda Heimi

Gylfi Þór Sigurðsson segir vonbrigðin óneitanlega mikil eftir að Ísland féll úr leik á HM í knattspyrnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×