806 prósent meira virði í dag en fyrir aðeins þremur mánuðum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. desember 2018 17:00 Jadon Sancho. Vísir/Getty
Enski táningurinn Jadon Sancho þykir vera einn mest spennandi knattspyrnumaður Englendinga í langan tíma. Jadon Sancho er fæddur í mars árið 2000 og er því enn bara átján ára gamall. Nú er búist við því að mörg stórlið séu á eftir honum. Hann mun hinsvegar örugglega kosta sitt. CIES Football Observatory, hefur að venju verðmetið knattspyrnumenn heimsins og er Jadon Sancho þar engin undantekning. Það sem er aftur á móti athyglisvert með Jadon Sancho er að virði hans, samkvæmt CIES, hefur hækkað um 806 prósent aðeins þremur mánðum. Jadon Sancho's value has risen 806% in THREE months.https://t.co/mcTjBjQcYZpic.twitter.com/upGs2Obr02 — BBC Sport (@BBCSport) December 10, 2018Borussia Dortmund keypti Jadon Sancho frá Manchester City fyrir um tíu milljónir punda árið 2017 en í september síðasliðnum var hann metinn á 8,77 milljónir punda. Jadon Sancho hefur staðið sig vel með Dortmund á þessu tímabili og er með sex mörk og níu stoðsendingar í 19 leikjum í deild og Meistaradeild á leiktíðinni. Hann spilaði sinn fyrsta landsleik í október. Dortmund ætti að geta grætt vel á stráknum ákveði Þjóðverjarnir að selja hann því hann er nú metinn á 79,44 milljónir punda. Virði Andrew Robertson hjá Liverpool hefur einnig hækkað mikið eða úr 28,92 milljónum punda +i 72,12 milljónir punda. Richarlison, liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Everton, kostaði félagið 50 milljónir ounda í júlí en er nú metinn á 68,96 milljónir. Richarlison mætir einmitt sínum gömlu félögum í Watford í kvöld. Luke Shaw hjá Manchester United, er 237 próent meira virði núna en fyrir þremur mánuðum en Isaac Success hjá Watford hefur hækkað um 195 prósent og Callum Wilson hjá Bournemouth hefur hækkað um 158 prósent í verðamati CIES Football Observatory. CIES Football Observatory tekur allt inn í verðmat sitt, eins og aldur, samningsstöðu, leikstöðu og deild sem menn spila í.
Enski boltinn Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Sjá meira