Gefa ekki upp áætlað tap á landvinnslu HB Granda Svavar Hávarðsson skrifar 29. mars 2017 06:00 Þrátt fyrir mikinn uppgang HB Granda að undanförnu þarf fyrirtækið að skera niður. Starfsmenn búa við óvissu um framhaldið. Starfsmaður landvinnslunnar gekk hægum skrefum upp tröppur HB Granda í gær. vísir/Anton
Ekki fæst gefið upp hversu mikið tap HB Grandi áætlar að verði af landvinnslu félagsins á Akranesi næstu misserin að óbreyttu. „Við getum ekki fjallað um það sérstaklega. Fyrirtækið er á markaði og við getum ekki verið að tína einstakar tölur út úr rekstrinum,“ segir Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, spurður um útreikninga fyrirtækisins um afkomu landvinnslu á Akranesi. Eins og fram hefur komið taka forsvarsmenn HB Granda ákvörðun í dag um hvort landvinnslu botnfisks á Akranesi verði hætt. Það þýðir að 93 störf í landvinnslu tapast, auk afleiddra starfa í bænum. Má fastlega gera ráð fyrir að þessi breyting á rekstri fyrirtækisins muni snerta upp undir 150 manns á Akranesi.Vilhjálmur VilhjálmssonÍslensk sjávarútvegsfyrirtæki eru að koma út úr fordæmalausu góðæri. HB Grandi hefur skilað tugmilljarða króna hagnaði á undanförnum árum og voru arðgreiðslur í fyrra um þrír milljarðar króna, en stjórn félagsins leggur til að arðgreiðslur nemi 1,8 milljörðum fyrir árið 2016.En kemur ekki til greina að fyrirtækið taki höggið í einhvern tíma í ljósi þessarar góðu afkomu svo þessi mikli fjöldi fólks fái haldið atvinnu sinni? „Það er einfaldlega þessi staða til framtíðar sem við erum að meta núna. Það sem við höfum verið að horfa á er hvort það séu einhverjir möguleikar á því að rekstrarskilyrði fari batnandi. Við erum ekki að sjá það. Við sjáum ekkert slíkt í stöðunni og ég lít svo á að við séum í nauðvörn við að halda vinnslunni í landinu,“ segir Vilhjálmur. Spurður hvort virkilega sé raunhæfur möguleiki á því að vinnsla sjávarfangs fari úr landi, segir Vilhjálmur svo vera. Hún sé erlendis að litlum hluta í dag. „En ég er ekki í nokkrum vafa um það að ef gengi íslensku krónunnar helst svo sterkt sem raun ber vitni, eða styrkist frekar til nokkurra ára, þá mun það draga verulega úr vinnslu hér á landi.“ Spurður hvað gæti breytt þeirri mynd sem hefur verið dregin upp fyrir Skagamenn, og verður tilkynnt í dag að óbreyttu, segist Vilhjálmur ekki sjá það í fljótu bragði. „Ef ég hefði lausn til að breyta þessu þá hefði ég þegar lagt hana á borðið,“ segir Vilhjálmur. Þegar spurt er hvort krafan um að leggja niður landvinnslu á Akranesi hafi komið beint frá stjórn fyrirtækisins, svarar Vilhjálmur: „Það er mikið verið að tala um samfélagslega ábyrgð okkar. Hún snýst að stórum hluta um það að standa að rekstri sem ber sig. Það er samfélagslega óábyrgt að standa að rekstri til lengri tíma sem ber sig ekki,“ segir Vilhjálmur en þráspurður um hagnað fyrirtækisins á undanförnum árum í því samhengi bætir hann við: „Við höfum nýtt hann til mikilla fjárfestinga. Við erum til dæmis að byggja upp flota félagsins og tryggja reksturinn til framtíðar.“ Hann bætir við að stór hluti af hagnaði HB Granda skýrist af góðri afkomu af uppsjávarveiðum og vinnslu félagsins. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira