West Ham fékk á baukinn Henry Birgir Gunnarsson skrifar 20. október 2017 20:45 Það var ekkert gefið eftir í leiknum. vísir/getty Það er orðið verulega heitt undir Slaven Bilic, stjóra West Ham, eftir stórt tap, 0-3, á heimavelli gegn Brighton í kvöld. Glenn Murray skoraði tvö mörk fyrir Brighton í kvöld og Jose Izquierdo komst einnig á blað. Gengi West Ham í vetur hefur verið langt undir væntingum og þetta stóra tap á heimavelli gegn nýliðum Brighton gæti orðið svanasöngur Bilic hjá Hömrunum. West Ham er aðeins með átta stig í deildinni eftir níu leiki og er rétt fyrir ofan fallsæti. Brighton er aftur á móti komið í ellefu stig eftir sigurinn í kvöld. Enski boltinn