"Sjakalinn“ aftur fyrir dóm vegna 40 ára gamallar sprengjuárásar Kjartan Kjartansson skrifar 12. mars 2017 13:21 Ilich Ramírez Sánchez er betur þekktur sem "Sjakalinn“. Vísir/Samsett mynd
Réttað verður yfir „Sjakalanum Carlosi“, einum alræmdasta hryðjuverkamanni 20. aldarinnar, vegna fjörtuíu ára gamallar sprengjuárásar í París á morgun. Verði hann sakfelldur á hann yfir höfði sér þriðja lífstíðarfangelsisdóminn. Ilich Ramírez Sánchez framdi fjölda hryðjuverka í Frakklandi á 8. og 9. áratug síðustu aldar í nafni frelsisbaráttu Palestínumanna og kommúnískrar byltingar. Sjálfur var hann fæddur í Venesúela en palestínskir félagar hans nefndu hann Carlos. Fjölmiðlar gáfu honum viðurnefnið Sjakalinn í höfuðið á persónu í bókinni „Dagur Sjakalans“ eftir Frederick Forsyth sem síðar varð að samnefndri kvikmynd. Ramírez, sem nú er 67 ára gamall, afplánar nú lífstíðardóm fyrir fjölda morða og árása. Hann var fyrst sakfelldur í Frakklandi fyrir tuttugu árum en hlaut frekari dóma árið 2011 og 2013. Málið sem verður tekið fyrir dóm á morgun snýst um sprengjuárás sem gerð var í verslunarmiðstöð í Latínuhverfinu í París árið 1974. Þá var handsprengju varpað inn í veitingastað. Tveir létust og 34 særðust samkvæmt frétt The Guardian. Að sögn AP-fréttastofunnar hefur málið dregist á langinn vegna þess dómstóll vísaði því upphaflega frá vegna skorts á sönnunargögnum. Það var tekið upp aftur þegar Ramírez var handtekinn árið 1994. Lögmenn hans hafa allar götur síðan sett fram kröfur á hverju stigi málsins sem hafa tafið framgang þess. Sjálfur neitar Ramírez sök. Engu að síður birtist viðtal við mann að nafni Ramírez Sánchez í fréttablaði á arabísku sem gefið var út í Frakklandi fimm árum eftir árásina. Í því var haft eftir manninum að hann hefði varpað handsprengju inn í veitingastaðinn og nákvæm lýsing á árásinni og hvers vegna hún var gerð. Ramírez þrætir fyrir að hafa veitt viðtalið.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Fleiri fréttir Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Sjá meira