Femínistar þurfi að taka gríni Stefán Ó. Jónsson skrifar 23. ágúst 2017 10:55 Eiríkur Jónsson birti bréfið því honum þótt það hnitmiðað og skemmtilega orðað. Vísir
Skortur á skopskyni í samfélaginu, sérstaklega hjá ungfemínistum, útskýrir „heiftúðugu“ viðbrögðin sem lesendabréfið um brjóstaskoru saksóknarans Kolbrúnar Benediktsdóttur vakti á samfélagsmiðlum í gær. Um grín hafi verið að ræða sem lýsir ekki á nokkurn hátt skoðunum ritstjórans, Eiríks Jónssonar, á klæðaburði Kolbrúnar né annarra starfsmanna réttarins. Ef hann fengi einhverju ráðið væru lögmenn í gallabuxum og stuttermabol í réttarsalnum. Þetta er meðal þess sem kom fram í spjalli Eiríks Jónssonar við stjórnendur Bítsins í morgun þar sem fjölmiðlafár gærdagsins var til umræðu.Góður dagur á skrifstofunni Eiríkur segir að viðbrögðin við lesendabréfinu, þar sem Kolbrún var gagnrýnd fyrir að láta sjást í brjóstaskoru við aðalmeðferð í Birnumálinu, hafi komið sér á óvart. Það hafi bara „allt orðið vitlaust“ og fyrir vikið hafi gærdagurinn verið „frábær“ á skrifstofu vefmiðilsins. „Ef að dagurinn í dag verður eitthvað svipaður og dagurinn í gær þá verður að skrá eirikurjonsson.is í Kauphöllina,“ segir Eiríkur glettinn. Hann segir, þrátt fyrir að slá þann varnagla að geta ekki verið fullkomlega viss um það, að lesendabréfið hafi verið brandari. Hann hafi ákveðið að birta það á síðu sinni því honum þótti það skemmtilega orðað, stutt og hnitmiðað. „Það lýsti vissu viðhorfi, eins og lesendabréf gera,“ segir Eiríkur og bætir við að hann sé þó „allt annarrar skoðunar“ og bréfið hafi ekki lýst sinni skoðun í þessum efnum.Lesendabréfið sem hleypti öllu af stað.Skjáskot„Ég vil endilega að saksóknarar og dómarar séu klæddir bara í gallabuxur og stuttermabol mín vegna,“ segir Eiríkur. Þess í stað séu þeir alltaf „í einhverjum skikkjum eins og þeir séu frændi Zorro eða eitthvað.“ Þrátt fyrir að hafa sjálfur ekki skrifað bréfið segir hann hafa orðið fyrir miklu aðkasti vegna birtingarinnar. Hann hafi fengið „holskeflu af dónaskap,“ ekki síst frá ungum femínistum - „sem eru búnir að finnast sannleikann en eiga eftir að komast að því seinna að sannleikurinn er ekki til. Hann bara sveiflast til eftir því hvernig tíðarandinn er,“ segir Eiríkur sem skrifar þetta á „eðlislæga þörf þeirra til að hafa rétt fyrir sér.“ Málið komi feminisma ekkert við.Valsarar þurfa ekki að tryllast út í KR-inga Hann segir að menn verði að geta haft mismunandi skoðanir án þess að allt fari í bál og brand. Það sé þó hins vegar erfitt þegar kemur kynbundnum viðhorfum, þá verði umræðan „vond“ og heiftúðug“ að sögn Eiríks. „Þú getur alveg haldið með Val en þú verður ekkert brjálaður þegar þú hittir einhvern sem heldur með KR,“ segir Eiríkur. Þrátt fyrir viðbrögðin segir Eiríkur að því sé þó ekki að neita að „margir“ séu sammála því sem þar kom fram, að ekki væri við hæfi að saksóknarar væru í flegnum bolum. Vísar hann til færslu hæstarréttarlögmannsins Sveins Andra Sveinssonar þar sem hann segir að dómvörður myndi fleygja lögmönnum út úr salnum ef þeir klæddu sig ekki með hefðbundnum hætti. Hann ítrekar að hann hafi persónulega enga skoðun á klæðaburði Kolbrúnar, ekki frekar en klæðaburði annarra sem starfa við dómstóla landsins. „Mér er alveg sama hvernig þessi saksóknari er klæddur, mér er alveg sama hvernig fólk er klætt. Svo lengi sem það er hreint og kurteist.“ Spjall Eiríks við Bítið má heyra hér að neðan.
Tengdar fréttir Þórdís svarar Eiríki: „Hrútskýringar þínar væru afar vel þegnar“ Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Jón Gnarr hafa bæst í hóp þeirra sem gagnrýna frétt Eiríks Jónssonar um klæðaburð Kolbrúnar Benediktsdóttur varahéraðssaksóknara. Eiríkur segist ekki ætla að fjarlægja fréttina af heimasíðu sinni. 22. ágúst 2017 19:51 Brjóstaumfjöllun harðlega gagnrýnd Það er náttúrulega hneyksli að það geti sést að konur séu með BRJÓST. Hvílíkur dónaskapur! Hvað er næst, berir ökklar? 22. ágúst 2017 15:35 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent „Vissi ég að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Fleiri fréttir „Vissi ég að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Sjá meira
Þórdís svarar Eiríki: „Hrútskýringar þínar væru afar vel þegnar“ Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Jón Gnarr hafa bæst í hóp þeirra sem gagnrýna frétt Eiríks Jónssonar um klæðaburð Kolbrúnar Benediktsdóttur varahéraðssaksóknara. Eiríkur segist ekki ætla að fjarlægja fréttina af heimasíðu sinni. 22. ágúst 2017 19:51
Brjóstaumfjöllun harðlega gagnrýnd Það er náttúrulega hneyksli að það geti sést að konur séu með BRJÓST. Hvílíkur dónaskapur! Hvað er næst, berir ökklar? 22. ágúst 2017 15:35