Sigurganga City heldur áfram

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Manchester City auk forystu sína á toppi ensku úrvalsdeildarinnar aftur í átta stig þegar liðið sigraði West Ham 2-1 á Etihad vellinum í Manchester.

City þurfti að hafa fyrir sigrinum, en Angelo Ogbonna kom West Ham yfir undir lok fyrri hálfleiks.

Nicolas Otamendi jafnaði fyrir City á 57. mínútu og tryggði David Silva þeim sigurinn með marki á 83. mínútu.

Undir lok venjulegs leiktíma komust Hamrarnir grátlega nálægt því að jafna leikinn þegar Diafra Sakho skaut framhjá úr frábæru færi.

Þrátt fyrir að sigurinn hafi ekki verið öruggur þá voru heimamenn með mikla yfirburði. voru með boltann nærri 80 prósent í leiknum og áttu 24 skot að marki.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira