Innlent

Olli umferðaróhappi próflaus og stakk af

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Þá var ótryggð vörubifreið stöðvuð á níunda tímanum á Miklubraut í gær.
Þá var ótryggð vörubifreið stöðvuð á níunda tímanum á Miklubraut í gær. vísir/eyþór
Tilkynnt var um umferðaróhapp við Engihjalla á áttunda tímanum í gærkvöldi. Tjónvaldurinn hafði ekið af vettvangi en var stöðvaður skömmu síðar. Hann reyndist vera aðeins 17 ára og hafði aldrei öðlast ökuréttindi.

Málið var afgreitt með aðkomu foreldra og tilkynningu til Barnaverndar. Tjón var minniháttar, samkvæmt upplýsingum úr dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Þá var vörubifreið stöðvuð á níunda tímanum á Miklubraut. Bifreiðin var ótryggð og voru skráningarmerki hennar klippt af.

Tveir ökumenn voru auk þess stöðvaðir í gær vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna, annar á Reykjanesbraut og hinn í Dalsmára. Sá í Dalsmára reyndist einnig aka sviptur ökuréttindum og hafði gert ítrekað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×