Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manni vegna atviks sem átti sér stað í Breiðholtslaug mánudaginn 31. júlí síðastliðinn og er tilrannsóknar.
Er maðurinn beðinn um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000.
„Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið helgae@lrh.is eða einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í tilkynningunni.