Byssumaðurinn á Akureyri metinn ósakhæfur og sýknaður Kjartan Kjartansson skrifar 5. júlí 2017 17:28 Rúða og innanstokksmunir í íbúð nágrannakonu mannsins skemmdust þegar hann skaut úr haglabyssu sinni. Vísir/Sveinn
Andlega veikur maður sem skaut á íbúð nágrannakonu sinnar í Naustahverfi á Akureyri í mars í fyrra var sýknaður í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag. Hann var metinn ósakhæfur. RÚV greindi fyrst frá. Guðmundur St. Ragnarsson, lögmaður mannsins, segir að skjólstæðingur sinn hafi ekki neitað að hafa skotið af byssunni en hann hafi verið metinn ósakhæfur og því sýknaður. Hann hafi viðurkennt bótaskyldu í málinu. Maðurinn, sem er á fimmtugsaldri, var ákærður fyrir að stefna nágrönnum sínum í hættu og vopnalagabrot. Nágrannakona hans var heima hjá sér með tveggja ára gömlu barni þegar maðurinn hleypti af skotum úr haglabyssunni.Sjá einnig:Umsátur á Akureyri: Maðurinn ekki áður komið við sögu lögreglu Dómurinn hefur ekki verið birtur en í ákærunni kom fram að rúða í forstofu íbúðar nágrannakonunnar brotnaði og skemmdir urðu á innanstokksmunum og fatnaði í anddyri. Hagladrífan stöðvaðist á skáphurðum og vegg andspænis útidyrahurð hússins. Að sögn Guðmundar býr maðurinn enn á Akureyri en hann er undir reglulegu eftirliti lækna.
Tengdar fréttir Ákærður fyrir skotárás á Akureyri Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur manni á fimmtugsaldri fyrir að hafa skotið fimm skotum úr haglabyssu að bifreiðum og inngangi íbúðar í Naustahverfi á Akureyri í mars í fyrra. 31. mars 2017 06:00 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Ákærður fyrir skotárás á Akureyri Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur manni á fimmtugsaldri fyrir að hafa skotið fimm skotum úr haglabyssu að bifreiðum og inngangi íbúðar í Naustahverfi á Akureyri í mars í fyrra. 31. mars 2017 06:00