Faðir poppfræðanna ræðir við Íslendinga um ferilinn Stefán Þór Hjartarson skrifar 25. maí 2017 10:15 Faðir poppfræðinnar fer á eftirlaun á næstunni svo það fer hver að verða síðastur að kíkja á fyrirlestur hjá honum.
Simon Frith hefur verið kallaður faðir poppfræðanna. Hann hefur skrifað um tónlist síðan á áttunda áratugnum. Simon kemur hingað til lands á vegum Arnar Eggerts Thoroddsen, en Simon er leiðbeinandi hans í fræðunum. „Simon Frith má líklega kalla föður poppfræðanna. Hann er leiðbeinandinn minn í doktorsnáminu mínu úti í Edinborg. Hann mun flytja fyrirlestur þar sem hann fer til dæmis í gegnum feril sinn og síðan verður opinn spurningatími þar sem fólk fær að spyrja hann að öllum þeim spurningum sem kunna að vakna. Hann er nú að fara á eftirlaun og þetta er líklega síðasta akademíska heimsóknin hans,“ segir Arnar Eggert Thoroddsen, tónlistarblaðamaður, útvarpsmaður, doktorsnemi í tónlistarfræðum og margt, margt fleira – en hann stendur fyrir komu Simons Frith, eins helsta tónlistarspekings heimsins, hingað til lands þar sem hann mun halda fyrirlestur um ferilinn og fræðin í Veröld, húsi Vigdísar á hádegi í dag.En hvað fela poppfræðin í sér? „Það er hvernig við tökum popp- og rokktónlist og greinum hana með félagsfræðilegum hætti. Þá eru ýmsar spurningar sem við getum velt fyrir okkur – til að mynda tónleikamenningu; hvernig hagar fólk sér þegar það fer á Aron Can tónleika? Hagar það sér öðruvísi en þegar það fer á Rammstein tónleika? Hvaða merkingu hefur tónlistin fyrir þig – hefur það eitthvað með sjálfsmyndina að gera? Ég er þungarokkari, ég er hipphoppari og svo framvegis. Hvernig notum við þetta í mannlegum samskiptum? Hvaða áhrif hefur tónlistin á líf okkar þegar við erum til dæmis að safna plötum og svo framvegis. Þetta eru sumar þeirra spurninga sem hann hefur verið að skoða á sínum ferli.“Hvernig fer fræðimennska og dægurmenning saman? „Það sem er merkilegt við þetta er að þegar við hugsum um fræðin, þá hugsum við um eitthvað annað en það sem er skemmtilegt, eins og popp og rokk er. Það hefur kannski verið helsta áskorunin hjá fræðimönnum eins og Simon Frith og mér, okkur sem höfum verið að kenna þetta í háskólum, hvernig er hægt að fjalla um eitthvað sem á að vera skemmtileg, upplyftandi afþreying með leiðinda-fræðagleraugum? Nú er ég til að mynda að kenna námskeið í háskólanum sem heitir Félagsfræði dægurmenningar og þar eru krakkarnir að fá tækifæri til að skrifa um Kendrick Lamar eða Rammstein og það hefur verið mjög skemmtilegt fyrir þau og mjög spennandi – það segir manni ýmislegt, það að fara á bólakaf í þetta er mjög skemmtilegt.“Hefur verið mikið fjallað um popptónlist í fræðilegum gír hér á landi? „Nei, og það er það sem við erum að reyna að breyta núna í háskólanum. Fyrir þá nemendur sem koma þarna inn er þetta bara opinberun – „Má ég skrifa um Eminem í BA-ritgerðinni minni?!“ Já! Þú mátt það! Ég hlakka til að reyna að breyta þessu og kynna þetta almennilega í háskólanum. Til hvers að vera í háskóla ef það er ekki skemmtilegt?“Hvað mun Simon Frith fjalla um á föstudaginn? „Í þessum fyrirlestri ætlar hann að fara svolítið yfir feril sinn og tala um helstu hindranir sem hann hefur mætt þegar hann hefur verið að kenna þetta í háskólum, hann ætlar að tala um helstu áhugamál sín innan fræðanna og mun fara í svona það að velta fyrir sér hvaða merkingu þetta hefur fyrir hann. Hann hefur til að mynda sérstakan áhuga á lélegri tónlist – hvernig hægt er að mæla hana, hvað getur maður sagt: er til eitthvað sem heitir léleg tónlist? Hann hefur líka mikið verið að rannsaka tónleikamenningar-kúltúr. Hvað gerist á tónleikum? Hvað er það sem gerist úti í sal, hvað er það sem gerist upp á sviðinu og hvernig samskipti eru þarna á milli? Það er hægt að fara með þetta í allar áttir – plötusöfnun, útvarpsspilun og svo framvegis. Hann hélt til dæmis heila ráðstefnu þar sem hann talaði um efnislegan hluta tónlistar eins og til að mynda vínylsöfnun,“ segir Arnar Eggert að lokum en fyrirlesturinn fer fram eins og áður sagði í Veröld, húsi Vigdísar, í dag, föstudaginn 26. maí, klukkan 12 og það er frítt inn.
Mest lesið Umræða um kólesteról á villigötum Lífið Tileinkaði sér hæglæti og býr nú skuldlaust í sveitinni Lífið Villi Vill og Halla Vilhjálms á Nínu Lífið Keypti fyrstu íbúðina 21 árs og reif allt út Lífið Vala Eiríks og Óskar orðin foreldrar Lífið Einu sinni á ári eiga rithöfundar að umturnast í skemmtikrafta Lífið Yrsa reykspólar fram úr Geir Lífið Aðventan með Lindu Ben: Jólatré úr marengs Jól Friður og fegurð með silfurrefunum í Sigur Rós Lífið Mætti á dregilinn þrátt fyrir ásakanirnar Lífið Fleiri fréttir Hélt tryllt tónlistarteiti og eignaðist svo tvíbura Breyta japönskum dúett í íslenskt jólalag Landslið tónlistarmanna mætti þegar Maggi Eiríks var hylltur Fjölbreyttur hópur tónlistarfólks tilnefndur til Kraumsverðlauna Live in a fishbowl: Spacestation spilaði tónlist fyrir „fallegt fólk“ Uppáhalds jólalögin: Munkadjamm og jólaleg sambandsslit Kunna ekki að slaka á og heyrðu í Svölu Björgvins Live in a fishbowl: Dr. Gunni alltaf á leiðinni til að drepa þig „Látið jólaljós ykkar skína skært“ Auður einhleypur og skýtur á yfirvöld vegna Yazans Fyrstur kemur, fyrstur fær: Magnúsi Eiríkssyni fagnað og þjóðinni boðið Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Biggi Maus tók einn þekktasta slagara Arons Can í fiskabúrinu Daði Freyr tekur stefnuna til Íslands eftir áratug úti Fred again í sal en ekki á sviði: „Orðrómur sem við höfðum enga stjórn á“ „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ HAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977 Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu „Stórir hlutir að koma og fólk þarf að vera tilbúið“ Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi Sjá meira