Margt um manninn á Einni með öllu Ingvar Þór Björnsson skrifar 6. ágúst 2017 14:28 Meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum í kvöld eru Amabadama, 200.000 Naglbítar og Úlfur Úlfur. Linda Ólafsdóttir
Mikið var um að vera á hátíðinni Ein með öllu á Akureyri í gær og fór hátíðin vel fram samkvæmt upplýsingum frá skipuleggjendum og lögreglu. „Smekkfullt var á ráðhústorginu í gær og mikil stemning,“ segir Rúnar Eff Rúnarsson einn af skipuleggjendum hátíðarinnar. Meðal viðburða í gær var góðgerðarganga starfsmanna Slökkviliðs Akureyrar þar sem þeir söfnuðu pening fyrir Sjúkrahúsið á Akureyri. Segir Rúnar einnig að tónleikarnir á Ráðhústorginu hafi heppnast einstaklega vel en meðal þeirra sem komu fram voru Aron Can, KK Band og Greta Salóme. „Aðalmálið hjá okkur í dag eru tveir íþróttaviðburðir hérna í Gilinu. Það er svokallað Townhill og Uphill mót Hjólreiðafélags Akureyrar,“ segir Rúnar. Þessir viðburðir eru einstaklega áhorfendavænir að sögn skipuleggjenda. Í keppnunum keppast bestu fjallahjólreiðamenn landsins um að vera sem fljótastir niður kirkjutröppurnar. Búist er við fjölmenni á Sparitónleikunum í kvöld en tónleikarnir eru stærsti viðburður hátíðarinnar og jafnframt endapunktur hennar. „Það hafa alltaf verið á milli 10 og 25 þúsund manns á tónleikunum. Það kemur alltaf heill hellingur,“ segir Rúnar. Meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum eru Amabadama, 200.000 Naglbítar og Úlfur Úlfur. Tónleikunum lýkur svo á flugeldasýningu og smábátadiskói á Pollinum.Gengið af göflunum - Starfsmenn Slökkviliðs Akureyrar gengu fyrir Sjúkrahúsi Akureyrar.Linda ÓlafsdóttirAron Can kom fram á hátíðinni við mikinn fögnuð gesta.KK mundar gítarinn á Ráðhústorginu
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira