Fyrsta gamanmyndahátíð Íslands á Flateyri Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 23. ágúst 2016 09:30 Sigurður Skúlason og Theodór Júlíusson í hlutverkum sínum í myndinni Hjónabandssælu eftir Jörund Ragnarsson. Hún er opnunarmynd hátíðarinnar og ein þeirra sem tengjast Vestfjörðum efnislega.
Glaðværð verður ríkjandi vestur á Flateyri um næstu helgi á fyrstu gamanmyndahátíð á Íslandi. Hún hefst á hláturjóga, svo taka við sýningar á þrjátíu íslenskum gamanmyndum, auk annarra viðburða. „Alls verða fimm nýjar íslenskar gamanmyndir frumsýndar á hátíðinni og svo er heimsfrumsýning á myndinni Með allt á hreinu í þannig búningi að almenningur getur sungið lögin með. Ágúst Guðmundsson leikstjóri ætlar að mæta og segja áður ósagðar sögur og mér skilst einhverjir úr Stuðmannahópnum líka.“ Þetta segir Flateyringurinn Eyþór Jóvinsson, sem ásamt Ársæli Níelssyni stendur fyrir gamanmyndahátíð Flateyrar um næstu helgi. Það mun vera fyrsta hátíðin sinnar tegundar á landinu.Hér er afi Mannsi úr samnefndri heimildarmynd eftir Jón Bjarka Hjálmarsson.Hugleikur Dagsson skipar stóran sess á hátíðinni. Hann mun frumsýna fyrsta þáttinn í sinni nýju seríu, Hulla 2. Samhliða því verður hann með uppistand, ásamt Bylgju Babýlons og sýnd verður heimildarmynd um ferð hans og Ara Eldjárns til Finnlands. „Það var í fyrsta skipti sem Hugleikur flutti sitt efni utan Íslands. Ragnar Hansson gerði mynd um það ferli,“ lýsir Eyþór. „Þetta er í fyrsta sinn sem gamanmyndahátíð Flateyrar er haldin, en vonandi verður hún árleg héðan í frá,“ segir Eyþór Jóvinsson, sem sjálfur hefur fengist við kvikmyndagerð. Hann var með félaga sínum á kvikmyndahátíð síðasta haust þegar hugmyndin að hátíðinni kviknaði. „Við vorum búnir að horfa á dramatískar, þungar myndir sem tók dálítið á að sitja undir. Svo poppaði upp ein gamanmynd, sem var ekki einu sinni góð og varla fyndin en hún vakti mikla kátínu. - Af hverju ekki að halda eina kvikmyndahátíð þar sem markmiðið er að skemmta áhorfendum og gamanið fær að ráða för? hugsuðum við. Nú er það að verða að veruleika. Það sem okkur er efst í huga þegar við veljum myndir á hátíðina er að þær séu skemmtilegar og fyndnar, allt annað er aukaatriði.“Eyþór fékk hugmynd að hátíðinni þegar hann horfði á hverja dapurlegu myndina eftir aðra á kvikmyndahátíð erlendis.Eyþór segir markmiðið líka að koma af stað vitundarvakningu um gamanmyndaformið. „Ástæðan fyrir því hversu margir veigra sér við að gera gamanmyndir er að það er agalegt að mistakast. Það er nefnilega töluvert auðveldara að láta fólki líða illa en að fá alla til að hlæja. En það eru verðlaun fyrir kvikmyndagerðarmann þegar viðbrögð við gamanmynd hans eru eins og hann vonaðist eftir. Ef hefð kemst á hátíðina verður það vonandi til þess að fleiri gamanmyndir verði framleiddar.“ Eyþór kveðst hafa valið úr hátt í fimmtíu myndum fyrir hátíðina. Sú stysta tekur mínútu í sýningu, sú lengsta rúman klukkutíma, það er myndin Landsliðið sem var frumsýnd á heimildamyndahátíðinni Skjaldborg í vor. Hún er um tvö pör og sálfræðing sem skrá sig sem íslenska landsliðið á einni virtustu snjóhöggskeppni heims en ekkert þeirra hafði nokkru sinni gert ísskúlptúr áður. Úr því varð mikið ævintýri, allt fest á filmu. „Hafsteinn Gunnar Sigurðsson gerði þessa mynd, hún er alveg kostuleg og verður lokamynd hátíðarinnar í ár,“ segir Eyþór.Gamli bræðslutankurinn frá 1925 er einn af sýningarstöðum gamanmyndanna.Sýningar verða í samkomuhúsinu sem er hið gamla kvikmyndahús Flateyringa. Einnig verður sýnt í Tankinum, gömlum bræðslutanki frá 1925, sem verður líklega fyrsta hringlaga kvikmyndahúsið á landinu. Hann var hljóðver um tíma en nú er búið að rífa allt innan úr honum, að sögn Eyþórs. Á sunnudeginum verða sýndar íslenskar klassískar myndir í sundlauginni. „Við erum með kosningu á Fésbókarsíðu hátíðarinnar og mér sýnist á öllu að það verði Stella í orlofi og Dalalíf sem verði fyrir valinu. En við byrjum föstudaginn á hláturjóga. Þá verða allir gestir teknir út á tún og aðeins hitaðir upp fyrir kvöldið. Svo eru Greifarnir með ball hér á Vagninum á Flateyri og það er í fyrsta sinn í 30 ára sögu þeirra sem það gerist. Þeir eru mjög spenntir og ekki síður við Flateyringar.“ Ókeypis er á alla viðburði hátíðarinnar, að frátöldu sveitaballinu með Greifunum.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 23. ágúst 2016.Gamanmyndahátíð Flateyrar
Bíó og sjónvarp Menning Mest lesið Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Lífið Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Lífið Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Lífið Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna Bíó og sjónvarp „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Lífið „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Lífið Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Lífið Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni Lífið Fleiri fréttir Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna Potter-stjarna harmar hvernig fór með Rowling Gæsahúð og allur tilfinningaskalinn á forsýningu Mari Eltihrellirinn í Baby Reindeer íhugar að leita réttar síns Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr Snertingu Frumsýning á Vísi: Segja þjóðinni loksins frá harðræðinu á vistheimilunum Ljósbrot meðal opnunarmynda í Cannes Hámhorfið: Hvað eru grafískir hönnuðir að horfa á? Cox segir Phoenix ömurlegan sem Napóleon Komu saman vegna þrjátíu ára afmælis Pulp Fiction Á slóðum Arabíu Lárens með Anthony Hopkins Keanu Reeves mun leika helsta keppinaut Sonic Fyrsta plakatið og önnur kitlan úr Snertingu Hámhorfið: Hvað eru landsliðskonur í knattspyrnu að horfa á? Fylgdi Mari Jaersk á æskuslóðir: „Hann stakk hníf inn í lungun á pabba tvisvar“ Rowling enn bitur út í Harry Potter-stjörnurnar Frumsýning á Vísi: Fyrsta kitlan úr Snertingu Bridget Jones 4 kemur út á næsta ári Mun túlka Springsteen Finna enn gríðarlega sterk áhrif Eurovision-myndarinnar Verður aftur laglega ljóskan Elle Woods Svar Íslands og Sviss við Forrest Gump mætir á skjáinn Sjá meira