Flugvél Chapecoense líklega eldsneytislaus Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 1. desember 2016 07:00 Stuðningsmenn Chapecoense söfnuðust saman á heimavelli félagsins í gær og syrgðu. Nordicphotos/AFP
Flugvélin sem hrapaði í Kólumbíu nærri borginni Medellín í vikunni með leikmenn brasilíska knattspyrnuliðsins Chapecoense innanborðs varð að öllum líkindum eldsneytislaus. Frá þessu greinir BBC og vísar í hljóðupptökur frá flugturninum í Medellín. Stuttu áður en upptökunni lýkur heyrist flugmaðurinn biðja um leyfi til þess að lenda vegna algerrar rafmagnsbilunar og eldsneytisleysis. Þá heyrist hann segja að flugvélin sé í 2.743 metra hæð. Einungis sex af þeim 77 sem voru um borð lifðu flugslysið af en auk fótboltamannanna voru tuttugu blaðamenn í vélinni. Chapecoense var á leiðinni til Medellín til þess að leika einn stærsta leikinn í sögu félagsins, úrslitaleik Copa Sudamericana gegn Atletico Nacional. Nú hefur Atletico Nacional óskað eftir því að lið Chapecoense verði krýnt meistari. AFP greinir frá því að heimildarmönnum fréttastofunnar innan kólumbíska hersins þyki flugslysið afar grunsamlegt. „Það er mjög grunsamlegt að þrátt fyrir höggið hafi engin sprenging orðið. Það styrkir kenninguna um að eldsneytisleysi hafi orðið til þess að flugvélin hrapaði,“ er vitnað í einn heimildarmannanna. Orsök slyssins hefur þó ekki verið staðfest og er búist við því að full rannsókn málsins taki nokkra mánuði. Náð hefur verið í flugrita vélarinnar og eru þeir nú til rannsóknar. Breskir rannsakendur munu aðstoða við rannsóknina þar sem flugvélin, British Aerospace 146, var framleidd þar í landi.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Þúsundir syrgðu hetjurnar í Chapeco Hjartnæmt kveðjumyndband til þeirra sem létust í flugslysinu var birt á heimasíðu Chapecoense. 30. nóvember 2016 13:00 Náði að hringja í eiginkonuna eftir flugslysið Einn leikmaður brasilíska liðsins Chapecoense náði að hringja í eiginkonu sína eftir flugslysið í Kólumbíu. Hann lést skömmu síðar. 30. nóvember 2016 15:45 Mest lesið Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið Veður „Trúi ekki öðru en að hún taki þetta til sín“ Innlent Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Innlent Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Erlent Stofnun atvinnuveganna: Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Innlent „Við megum vera vond við börn“ Innlent „Þið komið ekki til Íslands til að brjóta af ykkur“ Innlent Ein lægð fjarlægist en önnur djúp nálgast Veður Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Erlent „Okkar bestu menn valdir í afísinguna“ Innlent Fleiri fréttir Gengst nú við að gaspra í Rússa Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Á rúntinum með andefni Danir ganga að kjörborðinu í afar spennandi kosningum Gervigreindarmyndskeiðum af barnaníði fjölgar gífurlega Meloni beið „bitran“ ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslu Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Notuðu myndavélar klerkastjórnarinnar til að fella Khamenei Sakar Orbán og félaga um landráð Íranir segja engar viðræður við Trump-liða eiga sér stað Deila á Bandaríkjaforseta fyrir að dansa á gröf rannsakanda Líklegt að Rasmussen verði í oddastöðu eftir kosningar Eigandi OnlyFans látinn Gerir hlé á árásum á Íran Lionel Jospin er látinn Kveikt í sjúkrabílum Gyðinga í London Ungverjar út í kuldann vegna leka til Rússa LaGuardia lokað vegna áreksturs við slökkviliðsbíl Sósíalistinn Grégoire nýr borgarstjóri Parísar Trump og Starmer ræddu Hormuz-sund „Stundum þarftu að auka spennuna til að draga úr spennunni“ Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu Sögðu líf Breta í hættu og skutu að breskri herstöð Robert Mueller er látinn Telja Musk hafa vísvitandi ýtt undir gerð kynferðislegra djúpfalsana Íhugar að draga úr hernaði í Íran Stöðvuðu annað meint skuggafley Rússa á Miðjarðarhafi Einn helsti samstarfsmaður Berlusconi látinn Stjórnvöld sögð skoða hernám eða umsátur um Kharg-eyju Formaður systurflokks Sjálfstæðisflokksins vill Noreg í ESB Sjá meira
Þúsundir syrgðu hetjurnar í Chapeco Hjartnæmt kveðjumyndband til þeirra sem létust í flugslysinu var birt á heimasíðu Chapecoense. 30. nóvember 2016 13:00
Náði að hringja í eiginkonuna eftir flugslysið Einn leikmaður brasilíska liðsins Chapecoense náði að hringja í eiginkonu sína eftir flugslysið í Kólumbíu. Hann lést skömmu síðar. 30. nóvember 2016 15:45