Tónlist

Hlakkar til að koma fram á Íslandi

Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar
Thorsteinn mun syngja tvö lög á Jólagestum Björgvins í Höllinni á morgun.
Thorsteinn mun syngja tvö lög á Jólagestum Björgvins í Höllinni á morgun. vísir/Ernir
„Þetta kom allt til vegna þess að Sena hafði samband og bauð mér að syngja í Höllinni á Jólagestum Björgvins, það er heiður fyrir mig að fá að stíga á svið með svona flottum söngvurum eins og Björgvini Halldórssyni. Ég sagði bara strax já, og er virkilega spenntur að koma fram á Jólagestum Björgvins,“ segir Torsteinn Einarsson söngvari en hann mun koma fram með Jólagestum Björgvins sem troða upp í Höllinni á morgun.

Thorsteinn mun syngja tvö lög á tónleikunum, annars vegar dúett með Friðriki Dór og hins vegar lagið sitt „Leya“ sem hefur nú þegar fengið yfir 800.000 spilanir á YouTube, ásamt því að hafa setið á topp 10 listanum í Austurríki í þrjár vikur.

„Ég kem til með að syngja White Christmas, eða hvít jól ásamt Friðriki Dór, svo ætla ég líka að taka lag eftir mig sem heitir Leya, með strengjum og stóru bandi, ég hlakka mikið til,“ segir Thorsteinn.

Þegar Thorsteinn var aðeins átján ára, hafnaði hann í fjórða sæti í austurrísku hæfileikakeppninni Die große Chance, keppnin er með sama hætti og hinir stórvinsælu þættir Got Talent, en þess má geta að sigurvegari Eurovision árið 2014, Conchita Wurst, tók þátt í keppninni á sínum tíma og lenti í sjötta sæti.

„Það var mjög gaman að taka þátt í keppninni, ég fékk að syngja með þekktu og reynslumiklu fólki í Austurríki, þetta var mikil reynsla, og ég lærði mjög mikið,“ segir hann og bætir við að hann sé virkilega þakklátur fyrir það.

En ertu orðinn frægur í Austurríki?

„Ég finn fyrir því þegar ég er úti í búð að fólk vill taka myndir af mér og svoleiðis. Þetta er samt alls ekkert Michael Jackson-dæmi, en ég finn fyrir því að fólk þekkir mig,“ segir hann.

Eftir frábært gengi í Die große Chance gerði Thorsteinn samning við Sony sem ætlar sér stóra hluti með hann í framtíðinni.

„Það er virkilega gott að vinna með Sony, þeir eru orðnir mjög góðir vinir mínir, við vinnum mikið saman og þetta er eins og fjölskyldan mín. Þetta er virkilega skemmtilegt tækifæri, og ég fæ að búa til tónlist sem ég fíla sem er virkilega gott,“ segir hann.

Thorsteinn hefur sungið mikið undanfarið en hann kom fram á Donauinselfest í júní þar sem hann söng fyrir mörg þúsund áhorfendur.

„Það var frábær skemmtun að spila fyrir framan 40.000 manns, og allir gátu sungið með,“ segir hann og bætir við að þetta hafi verið einn besti dagur lífs hans.

Nóg er um að vera fram undan hjá Thorsteini en hann mun fljúga beint til Austurríkis eftir tónleikana þar sem hann mun koma fram í jólaþætti þar í landi, með nýjustu smáskífuna sína, Swingset.

„Það er mjög mikið að gera fram að jólum og svo er ég bara að fara á fullt í stúdíótökur, að búa til meiri tónlist,“ segir Thorsteinn, en hann ætlar að eyða jólunum í faðmi fjölskyldunnar í Salzburg þar sem hann býr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×