Grunar að um hryðjuverk hafi verið að ræða Samúel Karl Ólason skrifar 28. nóvember 2016 21:16 Frá Ohio. Vísir/AFP
Lögreglan í Ohio í Bandaríkjunum grunar að mögulega hafi verið um hryðjuverka að ræða í dag, þegar ungur maður ók bíl inn í hóp af fólki og særði níu með hnífi. Einn er alvarlega særður. Árásarmaðurinn, Abdul Razak Ali Artan, fæddist í Sómalíu en var löglega í Bandaríkjunum. Árásin átti sér stað á lóð Ohio State háskólans. Lengi vel var talið að um skotárás hefði verið að ræða, en það kom fram á opinberum Twitter reikningi skólans. Það reyndist þó ekki rétt en árásarmaðurinn var skotinn til bana af lögreglu.Vitni sem AP fréttaveitan ræddi við segja árásarmanninn ekki hafa sagt orð á meðan hann réðst á fólkið. Lögregluþjónninn sem skaut Ali Artan var staddur á skólalóðinni fyrir tilviljun þar sem hann hafði verið kallaður út vegna gasleka. Hann skaut Ali Artan innan við mínútu eftir að árásin hófst. Undanfarna mánuði hafa áhyggjur aukist ytra vegna ákalls hryðjuverkasamtaka eins og Íslamska ríkisins til fylgismanna sinna um að þeir geri árásir sem þessar í heimalöndum sínum. Sjá einnig: Hafa lengi kallað eftir árásum af þessu tagi Í september stakk ungur maður frá Sómalíu tíu manns í verslunarmiðstöð í Minnesota. Hann var sagður hafa spurt fórnarlömb sín hvort þau væru múslímar áður en hann réðst á þau. Sá var skotinn til bana af lögregluþjóni sem var ekki á vakt og var í verslunarmiðstöðinni fyrir tilviljun. Sambærilegar hnífaárásir og annars konar árásir hafa einnig verið gerðar í borgum í Evrópu eins og London og París.Í myndbandinu að neðan ræða nemendur við Ohio State upplifun sína við fréttamann AP.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira