Ashley Cole fékk tvö gul á 17 sekúndum og var rekinn af velli | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. maí 2016 15:15 Ashley Cole verður í banni í næsta leik. vísir/getty
Ashley Cole, fyrrverandi bakvörður Arsenal, Chelsea og enska landsliðsins, var rekinn af velli á mettíma í leik LA Galaxy og Sporting Kansas City í MLS-deildinni í fótbolta í gærkvöldi. Cole, sem er 35 ára í dag, gekk í raðir Galaxy fyrir leiktíðina frá Roma, en hann varð Englandsmeistari þrisvar sinnum á ferlinum, bikarmeistari sjö sinnum og vann Meistaradeildina með Chelsea árið 2012. Honum tókst í gær að fá tvö gul spjöld með 17 sekúndna millibili og var rekinn af velli í stöðunni 1-1. Sem betur fer fyrir hann náðu félagar hans að halda út og fá stig gegn sterku liði Sporting Kansas. Fyrra gula spjaldið fékk Cole fyrir að vera of lengi að taka innkast en eftir að hann fékk spjaldið kastaði hann boltanum inn á. Boltinn barst strax aftur til hans en móttaka Englendingsins var svo slæm að Benny Feilhaber, leikmaður Sporting, tók af honum boltann. Cole ætlaði þá að tækla boltann af Feilhaber sem tókst því hann var langt á undan í boltann en vinstri fótur Cole fylgdi vel í gegn og endaði á ökklanum á mótherjanum. Fyrir það fékk sá enski sitt annað gula spjald. Myndband af atvikinu má sjá hér að neðan en atvikið hefst eftir tvær mínútur og 25 sekúndur.
Fótbolti Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Fleiri fréttir Yngri bróðir með frábæra ferilskrá tekur slaginn með KA Bowen heldur tryggð eftir fallið Loftgæðin hættuleg leikmönnum Heimsmeistarar fá hring Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Flugóður forseti FIFA Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? „Fjögur ár eru langur tími“ „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Ari Leifsson í Stjörnuna Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fáum svo mörg færi að það er erfitt að skora ekki Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Afturelding með fjögurra stiga forskot á toppnum Uppgjörið: Gri/Nja - FH 1-6 | Flugeldasýning sendi FH á toppinn Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Lærisveinar Sigga Ragga áfram eftir víti í uppbótartíma Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Vestri - Qarabag 0-3 | Úr leik í Evrópudeild en Lettland á næsta leiti Víkingur Götu - Stjarnan 2-2 (3-5) | Gerðu nóg Donald Trump mun mæta á úrslitaleik HM Áfall fyrir Sverri og íslenska landsliðið Breska ríkisstjórnin vill sjá refsingu frá FIFA Elsti leikmaður HM leggur hanskana á hilluna Saliba frá í nokkra mánuði Tuchel ætlar að halda áfram hjá Englandi þrátt fyrir gagnrýni Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Sjá meira