Ólafur hættir sem formaður sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 9. mars 2016 14:21 „Það var ekki auðvelt að taka þessa ákvörðun en ég er handviss um að hún er sú rétta,“ segir Ólafur. Vísir
Ólafur G. Skúlason, formaður Félags hjúkrunarfræðinga, ætlar að hætta sem formaður félagsins eftir þetta kjörtímabil. Ástæðan er að hann fékk starf hjúkrunardeildarstjóra á skurðstofum Landspítala í Fossvogi. Frá þessu greinir Ólafur á vefsíðu félagsins en hann ætlar að byrja á að taka út það leyfi sem hann á inni. Guðbjörg Pálsdóttir varaformaður mun því taka við stöðu hans frá og með 1. apríl næstkomandi. „Það var ekki auðvelt að taka þessa ákvörðun en ég er handviss um að hún er sú rétta,“ segir hann. Í tilkynningunni þakkar Ólafur það traust sem honum hafi verið sýnt í starfi formanns. Það hafi verið forréttindi að fá að vinna að málefnum hjúkrunar, heilbrigðiskerfisins og skjólstæðinga. Þá hafi félagið náð góðum árangri á síðustu árum en að enn séu verkefnin æði mörg. Helst beri að enfna að enn eigi eftir að landa kjarasamningi við sveitarfélögin, klára breytingar á stofnanasamningum og lagabreytingar félagsins. Tilkynningu Ólafs má lesa í heild hér fyrir neðan.Ágætu hjúkrunarfræðingar.Þegar ég ákvað að bjóða mig fram til formanns öðru sinni ákvað ég í samráði við fjölskyldu mína að það yrði mitt síðasta tímabil sem formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Það var ætlun mín að klára kjörtímabilið og hverfa svo til annarra starfa innan hjúkrunar.Í janúar var hins vegar auglýst staða hjúkrunardeildarstjóra á skurðstofum Landspítala í Fossvogi. Áhugi minn innan hjúkrunar er fyrst og fremst á klínísku starfi og hef ég mikinn áhuga á að efla hjúkrun og öryggi sjúklinga í klínískri starfsemi. Ég brenn fyrir hjúkrun og skipar þar skurðhjúkrun sérstakan sess enda sérmenntaður sem skurðhjúkrunarfræðingur. Ég sé framtíð mína fyrir mér innan klínískrar hjúkrunar og þykir mér stjórnun klínískrar starfsemi afar áhugaverð.Ég ákvað því að ég gæti ekki látið tækifærið fram hjá mér fara og sótti um umrædda stöðu. Ég fékk að vita það í gær að ég fengi stöðuna og ákvað ég að þiggja hana. Það er það rétta í stöðunni þegar ég er búinn að skoða eigin framtíðarplön og áhugasvið. Það var ekki auðvelt að taka þessa ákvörðun en ég er handviss um að hún sé sú rétta.Ég þakka það traust sem þið hafið sýnt mér í starfi formanns. Það eru forréttindi að fá að starfa sem formaðurinn ykkar og vinna að málefnum hjúkrunar, heilbrigðiskerfisins og skjólstæðinga okkar. Þetta starf hefur bæði kennt mér margt og þroskað sem einstakling. Ég tel okkur hafa náð góðum árangri á síðustu árum en verkefnin eru enn æði mörg. Helst ber að nefna að enn á eftir að landa kjarasamningum við sveitarfélögin, klára breytingar á stofnanasamningum og lagabreytingar félagsins.Við búum svo vel í Fíh að við eigum frábært starfsfólk. Valinn maður er í hverju rúmi og leggja starfsmenn okkar sig fram um að efla hag hjúkrunar og hjúkrunarfræðinga. Ég veit því að við verðum áfram í góðum höndum líkt og endranær.Ég mun byrja á því að taka út það leyfi sem ég á inni og mun Guðbjörg Pálsdóttir varaformaður taka við stöðu formanns Fíh. Guðbjörg er þaulreyndur hjúkrunarfræðingur bæði í klíník og stjórnun. Hún er klínískur sérfræðingur í bráðahjúkrun á LSH auk þess sem hún hefur gegnt stöðu deildarstjóra slysadeildar, aðstoðarmanns hjúkrunarforstjóra LSH, stýrt utanspítalaþjónustu og gegnt formennsku í fagdeild bráðahjúkrunarfræðinga. Guðbjörg hefur setið í stjórn félagsins til margra ára og síðustu tvö ár hefur hún gegnt stöðu varaformanns. Ég mun setja Guðbjörgu nánar inn í starfið og tekur hún formlega við 1. apríl. Stjórn Fíh mun ákvarða framhaldið eftir því sem fram vindur.Ég vona að sá mikli samstöðukraftur sem einkenndi hjúkrunarfræðinga í kjarabaráttu okkar s.l. sumar haldi áfram. Það er mikilvægt að við stefnum ótrauð í sömu átt og vinnum sameiginlega að því að efla hjúkrun, bæta starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga og tryggja það að skjólstæðingar okkar fái örugga þjónustu og þá bestu hjúkrun sem völ er á hverju sinni.Ég hlakka til að starfa áfram með félaginu á öðrum vettvangi og hlakka til að starfa með ykkur öllum innan heilbrigðiskerfisins í framtíðinni.Með vinsemd og virðingu,Ólafur
Mest lesið Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Bolsonaro í stofufangelsi Erlent „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Innlent „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Innlent Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Innlent Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs Innlent Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Erlent Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Innlent Fleiri fréttir Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Viðkvæm gögn í höndum Bandaríkjamanna og eftirlit lögreglu „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Mikill kraftur í íslensku atvinnulífi Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Fagna frestun framkvæmda í Heiðmörk Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Allir blása í Landeyjahöfn Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Fimm vistaðir í fangaklefa eftir hópslagsmál Þórisvatn fullt í fyrsta skipti í sex ár Íslenskar konur gáfu nýjan búning á fjallkonuna í Gimli Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Einn handtekinn vegna líkamsárasar Gosmóða mældist í Hvalfirði og á Vík í Mýrdal Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Þorgerður styður stofnun leyniþjónustu Síðustu þrjú banaslys orðið á sama stað við sömu aðstæður Sjá meira