Draumadagar Íslendinganna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. febrúar 2016 06:00 Gylfi Þór Sigurðsson. vísir/getty
Árið 2015 var ekki mikið markaár hjá Gylfa Þór Sigurðssyni í búningi Swansea City. Hann skoraði “bara” 5 mörk í 33 deildarleikjum þar af aðeins tvö mörk í 19 leikjum á fyrri hluta núverandi tímabils. Það tók Gylfa aðeins sex deildarleiki á árinu 2016 að jafna markaskor sitt frá árinu á undan. Gylfi hristi af sér slenið strax í fyrsta leik á móti Manchester United á Old Trafford. Fimmta markið hans á stuttum tíma kom síðan þegar hann skoraði með frábæru skoti beint úr aukaspyrnu á móti Crystal Palace um síðustu helgi.Aðeins Gomes haldið hreinu Heurelho Gomes er einn í flokki meðal þeirra markvarða sem hafa mætt íslenska landsliðsmanninum Gylfa Þór Sigurðssyni í ensku úrvalsdeildinni á árinu 2016. Gomes er nefnilega eini af þessum sex markvörðum sem hefur náð að halda hreinu á móti okkar manni. Gylfi er búinn að skora fimm mörk í fyrstu sex leikjunum og er í þriðja sæti yfir markahæstu leikmenn deildarinnar á nýju ári. Hann er þegar búinn að skora í fimm leikjum á árinu eða jafnmörgum leikjum og Argentínumaðurinn Sergio Agüero sem er markahæstur í deildinni á almanaksárinu 2016. Frammistaða Gylfa á síðustu 39 dögum er í hópi bestu daga íslenskra leikmanna í sögu ensku úrvalsdeildarinnar en Fréttablaðið skoðaði fleiri slíka draumadaga hjá íslenskum leikmönnum.Magnaður mars Gylfi átti sjálfur frábæra daga vorið 2012 en annars eru það Eiður Smári Guðjohnsen og Heiðar Helguson sem einoka listann ásamt Gylfa. Gylfi skoraði 6 mörk í 8 leikjum frá febrúar til apríl 2012 en hann var þá valinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni í marsmánuði. Mörkin hans sex skiptust þá niður á fjóra leiki. Gylfi á enn nokkuð í land að gera það sem Eiður Smári Guðjohnsen afrekaði með Chelsea-liðinu í desember 2001 til janúar 2002 en Eiður skoraði þá 9 mörk í aðeins 8 leikjum. Eiður skoraði meðal annars í fjórum leikjum í röð en Gylfi gæti jafnað það met með því að skora í næsta leik Swansea. Heiðar er sá eini sem kemst í þennan hóp með tveimur liðum. Hann skoraði 5 mörk í 5 leikjum með Fulham í ársbyrjun 2006 og skoraði síðan 6 mörk í 7 leikjum með QPR undir lok ársins 2011. Fjórði maðurinn sem er nálægt því að komast í þennan hóp er Arnar Gunnlaugsson sem skoraði 3 mörk í 4 leikjum með Leicester City undir lok árs 2000. Gylfi er búinn að skora hjá fimm markvörðum á árinu en hvort Fraser Forster verði sá sjötti í hópnum kemur í ljós eftir þrjá daga. Forster verður vissulega erfiður viðureignar enda búinn að halda hreinu í síðustu fimm leikjum Southampton sem eru jafnframt einu leikirnir sem kappinn er búinn að spila í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni. Miðað við það hvernig Gylfi er að spila þessa dagana þá mega Fraser Forster og varnarmenn Southampton passa sig á Liberty leikvanginum á laugardaginn.
Enski boltinn Mest lesið „Hann er sonur minn“ Fótbolti Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“ Handbolti Mátti ekki hlaupa maraþonhlaup með barnið sitt á sér Sport Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Handbolti Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Handbolti „Ef ég hitti Dag þá mun ég knúsa hann“ Handbolti EM-Pallborðið: Allt sem þarf að vita fyrir stórleikinn í dag Handbolti Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Enski boltinn „Langar að biðja Stólana afsökunar á því sem ég lét út úr mér í síðustu umferð“ Körfubolti Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Enski boltinn Fleiri fréttir Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Sjá meira