Rútur brenndar af vígamönnum Þorgeir Helgason skrifar 19. desember 2016 07:00 Talið er að hryðjuverksamtökin Jabhat al-Sham hafi ráðist á rúturnar og brennt þær í gær. Vísir/Getty
Uppreisnarmenn í Sýrlandi brenndu í gær sex rútur sem voru á leið til þorpanna Foah og Kefraya til þess að flytja á brott veika og slasaða borgara. Talið er að hryðjuverkasamtökin Jabhat al-Sham, sem áður gengu undir nafninu Al-Nusra Front, beri ábyrgð á árásinni. Hryðjuverkasamtökin berjast með uppreisnarmönnum gegn stjórnarher Sýrlands og er þeirra helsta markmið að koma á íslömsku ríki í Sýrlandi. Uppreisnarmenn og stjórnarher Bashars al Assad, forseta Sýrlands, gerðu hlé á átökum sínum á fimmtudag svo að unnt væri að flytja á brott saklausa borgara frá vígstöðvum í Aleppo. Samkvæmt sádiarabísku sjónvarpsstöðinni Al Ekhbariya átti fyrst um sinn að flytja 1.200 manns frá Aleppo og svipaðan fjölda frá þorpunum Foah og Kefraya. Þorpin tvö sem eru undir stjórn stjórnarhersins eru umkringd yfirráðasvæðum uppreisnarmanna. Þar ríkir mikil hungursneyð og erfitt hefur verið að koma íbúum þorpanna til aðstoðar. Samkvæmt heimildum fréttastofu BBC hafa margir gripið til þess neyðarúrræðis að borða gras til þess að lifa af. Árum saman hafa uppreisnarmenn haft austurhluta borgarinnar Aleppo á sínu valdi en undanfarnar vikur hefur stjórnarherinn gert harða hríð að þeim í þessum hverfum með sprengjuárásum. Uppreisnarmennirnir hafa misst yfirráðin og eru að hverfa á braut. Vopnahléssamningur uppreisnarmanna og stjórnarhersins kvað á um að hermenn uppreisnarmanna og fjölskyldur þeirra í austurhluta Aleppo fengju að yfirgefa borginni í friði gegn því að flytja mætti á brott veika og slasaða borgara Foah og Kefraya. Rússar og Tyrkir höfðu milligöngu í samningaviðræðunum um vopnahléið. Rússar styðja stjórn Assads forseta en Tyrkir hafa stutt uppreisnarmennina, rétt eins og Bandaríkin og önnur vestræn ríki. Í dag mun Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kjósa um hvort fulltrúar Sameinuðu þjóðanna geti fylgst með brottflutningunum frá Aleppo og öryggi þeirra sem dvelja í borginni. Samkvæmt tillögunni er lögð áhersla á að brottflutningur borgaranna sé að þeirra eigin frumkvæði og að þeir fái að velja lokaáfangastað sinn. Í tillögunni segir einnig að vernda beri jafnt þá borgara sem ákveða að yfirgefa Aleppo og þá sem ákveða að dvelja í borginni. Óttast er að Rússar beiti neitunarvaldi sínu í Öryggisráðinu og komi í veg fyrir framkvæmd tillögunnar. Þeir hafa hingað til beitt neitunarvaldi sínu í sex tillögum sem varða Sýrland á síðustu fimm árum.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Sjá meira