Gylfa finnst þessi bók góð og þessi bikar ljótur | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. febrúar 2016 13:30 Gylfi Þór Sigurðsson. Vísir/Getty
Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson hefur byrjað árið vel með Swansea City í ensku úrvalsdeildinni og góð frammistaða kallar á meiri umfjöllun og meiri áhuga á okkar manni. Sjónvarpsþátturinn Soccer AM á Sky Sports stöðinni ákvað að fá Gylfa til að fara yfir færslur, myndir og myndbönd sem hann hefur sett inn á Instagram-reikninginn sinn að undanförnu. Íslandstengingin er að sjálfsögðu mjög sterk á Instagram-reikningi Gylfa og þar má sjá meðal annars bókina sem hann gaf út fyrir jólin, fögnuðinn á Ingólfstorgi eftir að íslenska landsliðið tryggði sér sæti í úrslitakeppni EM á fyrsta sinn og þá fær kærasta Gylfa mikið hrós frá þáttarstjórnandanum. Gylfi er ánægður með bókina sína og segir frá því hvað þetta kvöld í september skipti miklu máli fyrir landsliðsmennina og íslensku þjóðina. Þar kemur einnig fram að Gylfi hafði sloppið við að efna loforðið um að brjóta áfengisbindindi sitt og fá sér eitt vínglas ef Ísland kæmist á EM. Landliðsfélagarnir drukku víst svo mikið að þeir tóku ekki eftir því að Gylfi fékk sér ekki neitt. Innslagið endar á mynd af Gylfa þegar hann var kosinn Íþróttamaður ársins 2013. Umræðan snýst um bikarinn sjálfan sem þeim báðum finnst vera ljótur. Það er hægt að sjá þetta fróðlega innslag í myndbandinu hér fyrir neðan.
Enski boltinn Evrópudeild UEFA Mest lesið Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Sterkir íslenskir hlauparar á EM í utanvegahlaupum Sport „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Fótbolti Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Fótbolti Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Handbolti Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Sjá meira