Meirihluti Bandaríkjamanna vilja fresta kosningu kjörmanna nína hjördís þorkelsdóttir skrifar 18. desember 2016 19:39 Ólíklegt verður að teljast að kosning kjörmanna hafi áhrif á niðurstöður forsetakjörsins. vísir/afp
Meirihluti bandarískra kjósenda telur að fresta eigi kosningu á meðal kjörmanna sem á að fara fram á morgun. Þetta kemur fram í grein The Huffington Post. Með þessari atkvæðagreiðslu eru úrslit forsetakosninganna, sem fóru fram 8. nóvember síðastliðinn, staðfestar. Þeir sem svöruðu skoðanakönnuninni voru spurðir að því hvort þeir teldu að fresta ætti atkvæðagreiðslunni þar til nánari upplýsingar um meinta aðkomu Rússa að forsetakosningunum væru staðfestar. 52 prósent aðspurðra svöruðu spurningunni játandi. Vladímír Pútín, forseti Rússlands, er grunaður um að hafa staðið fyrir tölvuárásum gagnvart landsnefnd Demókrata og kosningastjóra Clinton, John Podesta. Hillary Clinton hefur þegar lýst því yfir að hún telji að aðgerðir Pútíns hafi stuðlað að ósigri sínum. Sjá einnig: Clinton sakar Pútín um að hafa stýrt tölvuárásum til að hefna sín á henni Atkvæðagreiðsla kjörmanna hefur almennt ekki úrslitaáhrif á forsetakosningarnar, hún hefur hingað til verið álitin formsatriði. Hins vegar eru fræðilegar líkur á því að hægt sé að snúa við úrslitunum, þótt sérfræðingar telji slíkt nánast óhugsandi. Til þess að hrófla við úrslitunum þyrfti nokkur fjöldi kjörmanna Repúblíkana að kjósa þvert á afstöðu flokks síns en aðeins einnn kjörmaður lýst því yfir að hann hyggðist ekki ljá Trump atkvæði sitt, þótt orðrómar séu um að þeir kynnu að vera fleiri. Eins og kunnugt er hlaut Trump 306 kjörmenn í kosningunum í nóvember en Clinton 232. Hins vegar hlaut Clinton fleiri atkvæði á landsvísu.
Mest lesið „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Hjólhýsabyggð færist á Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent Fleiri fréttir Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Sjá meira