Vopnaðir menn tóku yfir kastala í Jórdaníu Samúel Karl Ólason skrifar 18. desember 2016 15:28 Kastalinn í Karak er vinsæll ferðamannastaður. Vísir/AFP
Hópur vopnaðra manna ruddi sér leið inn í kastala í Karak í Jórdaníu í dag. Mennir skutu minnst fjóra lögregluþjóna til bana á götum borgarinnar áður en þeir flúðu inn í kastalann. Kona frá Kanada er einnig látin sem og tveir Jórdanir. Umsátursástand ríkir nú við kastalann þar sem mennirnir eru taldir vera með ferðamenn í gíslingu. Kastalinn er frá tímum krossferðanna og er á hæð í borginni Karak. Hann er vinsæll ferðamannastaður. Á vef Reuters segir að lögreglan og sérsveitir hafi skipst á skotum við gíslatökumennina. Minnst níu eru særðir. Um tíu gíslar eru sagðir hafa verið frelsaðir úr kastalanum en ekki liggur fyrir hvort að búið sé að frelsa alla.Ekki liggur fyrir hverjir árásarmennirnir eru. Jórdanía er hins vegar eitt af fáum Arabaríkjum sem hefur tekið virkan þátt á aðgerðum gegn Íslamska ríkinu. Þá hafa Bandaríkin þjálfað sýrlenska uppreisnarmenn í Jórdaníu og sent þá aftur til Sýrlands til að berjast gegn ISIS.Reuters segir embættismenn í landinu hafa óttast upprisu öfgasamtaka í Jórdaníu að undanförnu og þá sérstaklega í fátækari hlutum landsins. Íslamska ríkið hefur heitið því að „brjóta upp“ landamæri Jórdaínu og samtökin lýstu yfir ábyrgð á bílasprengju á landamærum Jórdaínu og Sýrlands í sumar. Sex létu lífið í árásinni. Hér má sjá myndband tekið frá Karak þegar skothríðin hófst í dag.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Sjá meira