Endurbætur breyta ekki skipulaginu Sveinn Arnarsson skrifar 28. febrúar 2015 07:00 Í greinargerð með miðbæjarskipulaginu er lagt til að húsið víki fyrir gönguleið. Sú gönguleið sé þungamiðja í skipulagstillögunni. Fréttablaðið/Auðunn
Breytingarnar á Braunshúsi í Hafnarstræti á Akureyri munu ekki hafa áhrif á miðbæjarskipulag Akureyrar. Lagt er til í nýju skipulagi að húsið víki fyrir gönguleið sem talin er þungamiðja skipulagstillögunnar en hefur upp á síðkastið verið endurbætt nokkuð. Þetta er mat Loga Más Einarssonar, bæjarfulltrúa og arkitekts á Akureyri. „Nei, alls ekki, öll ákvæði standa óbreytt,“ segir Logi þegar hann er spurður hvort endurbætur á húsinu breyti miðbæjarskipulaginu. „Í greinargerð með skipulaginu segir að heimilt sé að flytja af skipulagssvæðinu tveggja hæða timburhúsið Hafnarstræti 106. Það er því ekkert sem kemur í veg fyrir það að húsið verði flutt eftir sem áður á aðra lóð síðar, þrátt fyrir að það fái nú nauðsynlegt viðhald.“ Logi Már hefur verið gagnrýndur fyrir að fyrirtæki hans, Kollgáta ehf., hafi gert teikningarnar að endurbótum á húsinu. Hann telur það á misskilningi byggt.Logi Már EinarssonMunur að eiga og mega „Það er fullkomlega eðlilegt að Kollgáta taki að sér verkefni eins og þetta. Arkitekt á ekki frumkvæði að framkvæmdum. Verkkaupi leitaði til Kollgátu um þessa þjónustu og við tókum verkefnið að okkur og fórum með það eftir lögboðnum farvegi,“ segir Logi. „Að sjálfsögðu hefði engu breytt hvort við hefðum tekið verkið að okkur eða ekki, varðandi hvort af því yrði. Margrét Kristín Helgadóttir, bæjarfulltrúi og lögmaður, hefur látið hafa eftir sér að húsið þurfi og eigi að víkja samkvæmt skipulaginu. Þetta er rangt. Annars vegar er lagt til að það verði flutt en hins vegar að það sé heimilt að færa það, en ekki rífa. Á þessu er grundvallarmunur og maður skyldi ætla að lögmaður sem er þrautþjálfaður í nákvæmri textavinnu átti sig á þessum merkingarmun.“ Telur húsið festast í sessi Pétur Bolli Jóhannesson, skipulagsfulltrúi Akureyrarbæjar, tók ákvörðun um að heimila endurbæturnar á húsinu án þess að bera það undir skipulagsnefnd bæjarfélagsins. Taldi Pétur Bolli það samrýmast vinnu sinni og vera innan þeirra heimilda sem lög og reglur setja embætti hans. Tryggvi Már Ingason, formaður skipulagsnefndar, telur rétt að skipulagsfulltrúi hafi ekki gerst brotlegur við reglur. Hins vegar telur hann eðlilegt að málið hefði átt að fara fyrir nefndina. Málefni hússins var tekið fyrir á nefndarfundi síðastliðinn miðvikudag. „Á fundi nefndarinnar ræddum við málið og gerðum athugasemdir við verklagið. Við teljum að þær breytingar sem samþykktar hafa verið á húsinu séu þess eðlis að þær festi húsið í sessi á þeim stað sem það er á í dag. Sú staðsetning er ekki til þess fallin að markmið miðbæjarskipulags Akureyrar nái fram að ganga,“ segir Tryggvi Már. „Við í nefndinni erum sammála um að þetta tiltekna mál hefði átt að koma fyrir nefndina. Hún hefði síðan átt að taka efnislega afstöðu til tillögunnar. Þó vil ég árétta að skipulagsstjóri fór ekki út fyrir umboð sitt í þessu máli.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Fleiri fréttir „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Sjá meira