Löggan í Eyjum fær ekki að leita að barnaklámi hjá meintum dónakarli Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. nóvember 2015 13:16 Maðurinn er búsettur í Vestmannaeyjum. Vísir/GVA
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands þess efnis að lögreglan í Vestmannaeyjum fái ekki heimild til að leita á heimili eldri manns á Heimaey. Telja dómstólarnir að ekki hafi verið sýnt fram á að rökstuddur grunur væri um að maðurinn hefði framið brot sem líklegt væri að hann yrði ákærður fyrir.Málið má rekja til fréttar DV frá 26. október þar sem upplýst var að íbúi á Heimaey hefði á Facebook-síðu sinni myndaalbúmið „Stelpurnar í bænum“. Þar mátti sjá myndir af táningsstelpum á leið heim úr skóla. Lögreglan fékk ábendingu um hver umræddur maður væri og skoðaði umrædda Facebook-síðu. Þar hafi verið að finna mjög mikið magn af ljósmyndum og myndböndum sem sýndu fáklæddar ungar konur í kynferðislegum stellingum. Þá hafi einnig mátt sjá myndir af ungum konum eða stúlkum á gangi og hafi litið svo út sem myndirnar hefðu verið teknar án þeirra vitundar. Hafi tvær stúlknanna verið nafngreindar.Búið að fjarlægja myndir og myndbönd Með vísan til eðli myndanna hafi grunur vaknað um að kærði gæti haft undir höndum ólöglegt efni, svo sem barnaklám. Þegar lögregla hafi ætlað að taka afrit af myndunum hafi verið búið að fjarlægja allar upplýsingar á Fésbókarsíðu kærða, þar á meðal fyrrnefndar myndir og myndbönd. „Lögregla telur miklar líkur á því að kærði hafi undir höndum ólöglegt efni sem sýni konur og börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Rannsókn málsins sé á frumstigi en lögreglu sé nauðsynlegt að fá heimild til húsleitar svo leggja megi hald á tölvubúnað kærða og annan búnað svo rannsókn geti hafist á því hvort að um ólöglegt efni sé að ræða. Til að tryggja rannsóknarhagsmuni og að sakargögnum verði ekki spillt sé lögreglu nauðsynlegt að fá framangreinda heimild,“ segir í greinargerð lögreglu. Ætluð brot geta varðað allt að tveggja ára fangelsi. Þar sem lögregla gat ekki lagt fram nein gögn sem bentu til þess að maðurinn hefði undir höndum ólöglegt efni, svo sem barnaklám, taldi héraðsdómur ekki að lögreglustjóri hefði sýnt fram á um rökstuddan grun sem gæti leitt til ákæru. Var beiðninni því hafnað. Hæstiréttur staðfesti þá niðurstöðu í gær.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Baldur til Eyja Innlent Fleiri fréttir Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Sjá meira