Helmingi fleiri tilkynningar um heimilisofbeldi eftir að vinnulagi var breytt Sveinn Arnarsson og Viktoría Hermannsdóttir skrifa 26. febrúar 2015 10:00 Pallborðsumræður voru eftir erindin þar sem meðal annars var rætt hvort vantaði betri úrræði fyrir börn sem höfðu upplifað heimilisofbeldi. Fréttablaðið/Valli
Tilkynningum um heimilisofbeldi hefur fjölgað um rúman helming á höfuðborgarsvæðinu eftir að lögregla og félagsþjónusta fóru að vinna eftir nýrri nálgun í málaflokknum. „Að hluta til held ég að aukningin sé breyting og bæting á skráningu heimilisofbeldis, vonandi vegna aukinnar tiltrúar á verklagi og auknu trausti til lögreglunnar í þessum málum,“ segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Fjallað var um ofbeldi inni á heimilum á morgunverðarþinginu Náum áttum í gær. Alda Hrönn kynnti þar nýja nálgun lögreglu og félagsþjónustu í heimilisofbeldismálum. Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, tekur undir með Öldu Hrönn um ástæður aukningar tilkynninga um ofbeldi. „Aukning tilvika orsakast líklega bæði af meiri tiltrú á lögregluna sem og að umræðan vekur fólk til umhugsunar,“ segir hún. Aukin tiltrú á lögreglu hafi áhrif bæði á þolendur ofbeldisins og nágranna og ættingja, sem tilkynni líka ofbeldi. „Það eru fleiri en þolendur einir sem tilkynna,“ segir hún. Reykjavíkurborg lagði aukalega fram 50 milljónir króna í sérstakt átak gegn heimilisofbeldi sem hófst í byrjun þessa árs og er samstarfsverkefni lögreglu og velferðarsviðs borgarinnar. Verkefnið byggir á reynslu lögreglunnar á Suðurnesjum. Í máli Öldu kom fram að frá því að verkefnið fór í gang hefði tilkynningum vegna heimilisofbeldis fjölgað mjög.Kristín ÁstgeirsdóttirÁ fyrsta mánuði hefði komið upp 51 mál en að meðaltali hefðu þau verið kringum tuttugu á mánuði 2014. Alda segir strax hafa sýnt sig að þörfin væri mikil, en ekkert benti þó til að meira sé um heimilisofbeldi en verið hafi. Einnig héldu erindi Margrét Ólafsdóttir aðjunkt og Ingibjörg H. Harðardóttir lektor um rannsókn sína þar sem rætt var við níu börn á aldrinum 9 til 14 ára, sem orðið höfðu fyrir ofbeldi á heimili, og mæður þeirra. Þær segja fjórðung skólabarna þekkja einhvern sem hefur orðið fyrir ofbeldi heima hjá sér. Börnin upplifðu að andlega ofbeldið væri verst og vildu gjarnan að hægt væri að leita hjálpar í skólanum, þótt þau teldu hann einnig vera griðastað frá ofbeldinu. Á fundinum lýstu nokkrir áhyggjum af því að úrræði vantaði fyrir börn. Í pallborðsumræðum sagði Einar Gylfi Jónsson sálfræðingur ekki næga vitneskju um áhrif heimilisofbeldis á börn. Hann vitnaði í bandarískan sálfræðing sem sagt hafði líðan barna sem lent hefðu í slíku ofbeldi sambærilega við líðan barna á stríðssvæðum.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Sjá meira