Bæjarstjóri efast um díoxínmengun í kjöti Garðar Örn Úlfarsson skrifar 6. janúar 2015 07:00 Öllu sauðfé í Engidal var slátrað vegna díoxínmengunar frá sorpbrennslunni Funa. Fréttablaðið/Vilhelm
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, segir bæinn ekki viðurkenna skaðabótaskyldu vegna díoxínmengunar frá sorpbrennslunni í Engidal þótt bærinn ætli að taka þátt í að bæta tjón bænda á svæðinu. „Það kann að hljóma undarlega, en ég hef aldrei séð gögn sem sýna fram á díoxínmengun í þessu kjöti úr Engidal, marktækt yfir mörkum. Þvert á móti þá sá ég á sínum tíma skýrslur frá danska rannsóknaraðilanum, sem sýndu að mengun í kjöti var í öllum tilfellum undir mörkum. Það er einmitt af þessum ástæðum sem Ísafjarðarbær hefur aldrei viðurkennt að vera valdur að því tjóni sem varð,“ segir Gísli. Búpeningur í Engidal var felldur í kjölfar díoxínmengunar sem barst frá sorpbrennslunni Funa. Stöðinni, sem hafði verið á undanþágu, var lokað í árslok 2010.Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði.Gísli segir að fróðlegt væri að sjá frumskýrslur með mengunarupplýsingum frá Matvælastofnun (MAST). „Ástæða þess að slátra þurfti búpeningi í Engidal var bannið sem MAST hafði sett á kjötið og uppnámið sem MAST olli með því að innkalla íslenskt lambakjöt frá Evrópu. Eina leið sláturleyfishafa og bænda til að losna úr þeirri klemmu var að útrýma gripunum í Engidal og tjónið stafaði af því,“ segir bæjarstjórinn. Ekki fengust svör frá MAST í gær en í skýrslu stofnunarinnar um framtíð búskapar í Engidal segir að díoxín hafi mælst yfir mörkum í sýnum sem tekin voru úr kjöti af svæðinu í desember 2010. Díoxín hafi áður mælst yfir mörkum í mjólk. Ísafjarðarbær hefur nú samþykkt gagntilboð Kristjáns Ólafssonar á Kirkjubóli IV um bætur vegna tjóns sem hann varð fyrir. Í september síðastliðnum var gengið frá samkomulagi um bætur til Karls Bjarnasonar í Neðri Hjarðardal II. Samkomulag við Steingrím Jónsson í Efri-Engidals, sem rætt var við í Fréttablaðinu í gær, er enn ófrágengið. „Við bíðum enn formlegra viðbragða frá Steingrími við tilboði okkar sem lagt var fram fyrir löngu síðan,“ segir Gísli. Að sögn Gísla ákvað Ísafjarðarbær þrátt fyrir málavexti að bjóða bændunum bætur þannig að þeir þyrftu ekki að sitja sjálfir uppi með allt tjónið. „Engu að síður viðurkennir Ísafjarðarbær ekki bótaskyldu í málinu,“ undirstrikar bæjarstjórinn. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær vildi Ísafjarðarbær ekki upplýsa um þær bætur sem bæjarráðið samþykkti að greiða fyrir jól. Það mál varðar bæturnar til Kristjáns. „Ástæða þess að ekki er upplýst um bæturnar að sinni er að við teljum okkur þurfa leyfi frá Kristjáni. Við eigum enn eftir að fá afstöðu Kristjáns til þess,“ segir Gísli Halldór Halldórsson.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Sjá meira