
Þá kom að því, að suðurríkjarokkararnir í Kings of Leon stigu á svið og þeir voru stundvísir. Undirritaður var heillaður, alveg frá fyrsta tóni, frá því að fyrsti hljómurinn í laginu Supersoaker, sem er jafnframt fyrsta lagið á nýjustu plötu Kings of Leon, Mechanical Bull, allt fram að síðasta hljómi í lokalagi tónleikanna, sem er jafnframt vinsælasta lag sveitarinnar, Sex on Fire.
Bræðurnir þrír, Caleb Followill, Nathan Followill, Jared Followill og frændinn Matthew Followill slógu ekki feilnótu alla tónleikana, eða þá hefur hún allavega farið fram hjá undirrituðum.
Með þeim á sviðinu var þúsundþjalasmiður að nafni Ethan Luck, sem spilaði á slagverk, gítar, hljómborð, söng bakraddir og allt þar á milli. Þessir fagmenn léku öll vinsælustu lög sveitarinnar og voru öryggið uppmálað í spilamennsku sinni og framkomu. Tónleikagestirnir, sem voru um átta þúsund manns, fengu að heyra lög af öllum sex breiðskífum Kings of Leon og því klárt mál að þeir fengu helling fyrir sinn snúð, sama hvaða plata er í uppáhaldi.

Söngvari sveitarinnar, Caleb Followill, talaði aðeins við tónleikagesti á milli laga en var aldrei með neitt óþarfa blaður. Hann sagðist til dæmis vera flugþreyttur en að hann myndi laga það með því að drekka sig fullan og glotti í kjölfarið. Þá sagði töffarinn einnig þegar langt var liðið á tónleikana að sveitin hefði í hyggju að koma aftur til landsins, það væri frábært að vera á Íslandi og þeir hefðu hlakkað mikið til þess að koma hingað. Annars virtust liðsmenn Kings of Leon að mestu leyti vera einbeittir í því að skila sínu vel, sem þeir gerðu. Þeir voru ekki með neitt óþarfa blaður og það er bersýnilegt að þessi gaurar hafa svo sannarlega spilað á nokkrum tónleikum áður. Þvílík reynsla og fagmennska.

Það eina sem undirritaður gat sett út á á tónleikunum var svæðisskiptingin og fannst honum heldur mikið að hafa svæðin fjögur, A+, A, B og C svæði. Ástæðan fyrir því gæti verið sú að undirritaður er ekki vanur svona mörgum svæðum á standandi tónleikum á Íslandi og þetta því svolítið viðbrigði. Annars var allt skipulag til mikils sóma og virtist undirrituðum allt fara vel fram og allir ganga sælir og sáttir úr Nýju-Laugardalshöllinni.
