Innlent

Gríðarlegt hagsmunamál fyrir heimilin

Linda Blöndal skrifar
„Við byrjuðum að fylgjast með þessum breytingum í haust. Við munum gera það áfram á næstu mánuðum og til þess höfum við útvíkkað okkar starfsemi svolítið,“ segir Henny Hinz, hagfræðingur hjá ASÍ, aðspurð um hvernig ASÍ hafi nálgast það að fylgjast með þeim skattabreytingum sem tóku gildi um áramótin.

Henný segir ASÍ vera vant að fylgjast vel með matvörumarkaðnum, en kannski ekki raftækjum, bílavarahlutum og byggingarvörum. „Þannig að við höfum reynt að útvíkka okkar starfsemi til þessara flokka til þess að geta fylgst vel með þessu.“

Hafið þið áhyggjur af því að ágóðinn af þessu renni ekki til neytenda?

„Það er að minnta kosti full ástæða til þess að fylgjast vel með því. Þetta er gríðarlegt hagsmunamál. Þetta er mikil breyting. Það eru í raun og vera að verða breytingar á verði, annað hvort til hækkunar eða lækkunar, á nánast öllum útgjöldum fólks.

Auðvitað er mikil hagsmunamál að þær lækkanir sem eiga að verða skili sér og sömuleiðis að hækkanir verði ekki meiri en tilefni er til. Við teljum því mjög brýnt að fylgjast með þessu og hvetjum neytendur sérstaklega. Þeir eru sjálfir lykilaðilar í að fylgjast með breytingum þó að við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að upplýsa um stöðu mála,“ segir Henný.

Mikið var að gera í stærstu verslunum landsins við að breyta verðmerkingum á nokkur þúsund vörum vegna skattabreytinga sem tóku gildi um áramótin og munu koma við hvert heimili í landinu.

Breytingar á virðisaukaskatti tóku gildi nú um áramótin og skila sér strax í breyttu verðlagi og vart verður við lækkun vörugjalda á næstunni. Lægra þrep skattsins fer úr 7 í 11 prósent sem þýðir 3,7 prósenta hækkun á vöruverði almennt. Hærra þrepið fer frá 25,5 prósent niður í 24 prósent sem lækkar verð 1,2 prósent.

Vörugjöld og sykurskattur hafa verið felld niður en vörur sem báru vörugjald geta lækkað um allt að 20 prósent miðað við þá álagningu sem var í um 800 vöruflokkum. Lækkun vörugjalda mun koma í ljós á næstu vikum en enn eru verið að selja vörur frá birgjum sem báru vörugjöldin sem felld eru nú niður.

Verðbreytingin nær til nær allra þátta sem viðkoma heimili landsmanna, heita vatnið hækkar en rafmagn til almennra nota lækkar, sem og verð á rafvörum, fötum og skó, húsgögnum, varahlutum í bíla og fleira. Ekki hefur orðið viðlíka breyting á neyslusköttum í seinni tíð.  

Skattalækkunin í heild á að lækka neysluvísitölu um 0,4 prósent, samkvæmt fjármálaráðuneytinu.


Tengdar fréttir

Mestu skattabreytingar í seinni tíð

Mikið var að gera í stærstu verslunum landsins við að breyta verðmerkingum á nokkur þúsund vörum vegna skattabreytinga sem tóku gildi um áramótin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×