Yfir tvö tonn af búnaði með Of Monsters and Men Gunnar Leó Pálsson skrifar 22. ágúst 2015 09:00 Hljómsveitin kom fram á tvennum tónleikum í Hörpu í vikunni. Vísir/Anton
Hljómsveitin Of Monsters and Men hefur farið sigurför um heiminn að undanförnu. Hún hefur verið á tónleikaferð um allan heim og þá hefur nýja platan, Beneath The Skin fengið prýðis dóma í erlendum miðlum. Hljómsveitin kom fram á tvennum tónleikum á Íslandi í vikunni en það voru jafnframt fyrstu tónleikar sveitarinnar hér á landi í um tvö ár. Fréttablaðið vildi skyggnast á bak við tjöldin og sjá hversu stórt fyrirtæki hljómsveitin Of Monsters and Men er í umfangi þegar hún er á tónleikaferðalagi. Þegar svona stór hljómsveit kemur fram á tónleikum, þá er ekki bara stillt upp hljóðfærum, stungið í samband og þá allt orðið klárt. Nei, ferlið er stærra og meira og fjöldi fólks sem ferðast með hljómsveitinni til þess að láta ferðlag hljómsveitarinnar og tónleika sveitarinnar ganga upp eins og til er ætlast. Allt í allt eru 22 manneskjur sem koma að tónleikum sveitarinnar en Heather Kolker umboðsmaður OMAM gerir ráð fyrir að þessi tala hækki í 23 eða 24 manneskjur þegar líður á tónleikaferðina og sveitin fer að spila á stærri tónleikastöðum.22 manneskjur á tónleikaferðalaginu Meðlimir sveitarinnar:Nanna Bryndís Hilmarsdóttir söngvari og gítarleikari Ragnar Þórhallsson söngvari og gítarleikariBrynjar Leifsson gítarleikariKristján Páll Kristjánsson bassaleikariArnar Rósenkranz Hilmarsson trommuleikariFjórir aukahljóðfæra-leikarar með sveitinni Steingrimur Karl Teague leikur á hljómborð, harmonikku og ýmislegt annaðRagnhildur Gunnarsdóttir leikur á trompet, harmonikku, hljómborð og ýmislegt fleiraBjarni Þór Jensson leikur á gítar, hljómborð, slagverk og ýmislegt annað Sigrún Jónsdóttir leikur á ýmis blásturshljóðfæri, strengjahljóðfæri og ýmislegt annað.Ingi Garðar Erlingsson leikur á Básúnu en hann er ekki með sveitinni lengur.Á bakvið tjöldin Þá er komið að þeim einstaklingum sem sjást sjaldan á sviðinu en Of Monsters and Men er eins og flestar stærri sveitir með stórt teymi á bak við sig.1 Framkvæmdarstjóri tónleikaferðalagsins1 Sölustjóri varnings á ferðalaginu1 Aðstoðarrekstrarstjóri hljómsveitar1 Sviðshljóðmaður1 Hljóðmaður í sal1 Ljósamaður1 Gítartæknimaður1 Trommutæknimaður2 Hljóð- og ljósatæknimenn1 Trukkabílsstjóri2 RútubílsstjórarMikill búnaður fylgir Til að halda tónleika þurfa hljóðfæraleikararnir búnað en fjöldi hljóðfæra er talsverður, hér er hluti af þeim búnaði:18 gítarar12 trommurUm 70 míkrófónar og directbox6 effectapedalaborð2 mixerborð1 ljósaborð8 níu feta og þriggja metra háir ljósaþríhyrningar sem er hluti af sviðsmynd sveitarinnarÍ heildinar eru farmur sveitarinnar um 65 hlutir og um 2.300 kíló í heildina.Vilja horfa á hryllingsmyndir á milli tónleika Hljómsveitir sem eru á tónleikaferð eiga að jafnaði frekar erfitt með það að fara út í búð og versla í matinn eða fara á veitingastaði og þess vegna gera sveitir svokallaðan ræder-lista. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er ræder-listi hljómsveitarinnar misjafn og fer að mestu eftir því hvort hljómsveitin sé að spila sem aðalnúmer á sínum tónleikum eða á tónlistarhátíð. Hljómsveitin fer fram á nokkra hluti en hollustan er þó í fyrirrúmi. Dæmi um hluti sem hafa verið á ræder-lista OMAM er: VatnsflöskurAlmond mjólkSkyrEggúrval ávaxtaHummusGuacamoleOstarHrökkbrauðBjórVínEinnota tattúÞess má til gamans geta að meðlimir sveitarinnar hafa gaman af hryllingsmyndum því hljómsveitin biður gjarnan tónleikahaldarana á hverjum stað fyrir sig að velja fyrir sig hryllingsmynd til þess að horfa á þegar sveitin ferðast á næsta tónleikastað.
Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Gloria Steinem er látin Lífið Fleiri fréttir HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Kanye treður upp í Rússlandi Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks í Iðnó í október Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Heiður að endurvekja falda perlu Palla Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Suki dásamar Laufeyju Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Sjá meira