Dæmi um alvarleg áhrif gasmengunar á heilsu Svavar Hávarðsson skrifar 17. janúar 2015 10:00 Myndin er tekin 20. september þegar mengunin krafðist þess að jarðvísindamenn verðu sig öllum stundum - jafnvel á keyrslu meðfram gosstöðvunum. Mynd/Magnús Tumi „
Það voru tvö tilvik með lögreglumenn sem misstu að kalla meðvitund eftir að hafa andað gasinu að sér. Svo hefur reynt mjög á minn mannskap þarna uppfrá, það er rétt,“ segir Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur á Jarðvísindastofnun, um þá niðurstöðu í eftirliti sóttvarnalæknis á heilsufari að nokkrir einstaklingar urðu fyrir alvarlegum heilsufarsáhrifum á meðan þeir dvöldu við gosstöðvarnar í Holuhrauni. Frá því að eldsumbrotin hófust í lok ágúst má einnig merkja aukningu á ýmsum einkennum frá öndunarvegi hjá fólki víða um land - aðallega á Austurlandi. Ármann lýsir aðstæðum þannig að þegar gasinu hefur slegið yfir menn í stuttan tíma fái þeir áköf hóstaköst og jafni sig ekki fyrr en að nokkrum dögum liðnum, og bætir við að enn skilar eldstöðin gríðarmiklu magni ennþá af brennisteinsdíoxíði. Um eftirlit um heilsufarsáhrifin segir: „Eftirlit sóttvarnalæknis á heilsufari bendir til aukningar á ýmsum einkennum frá öndunarvegum einstaklinga víða um land þann tíma sem gosið hefur staðið miðað við undanfarin ár, einkum á Austurlandi. Engin alvarleg heilsufarsáhrif má þó rekja til gossins nema hjá nokkrum einstaklingum sem staddir voru við gosstöðvarnar sjálfar.“ Þórólfur Guðnason, yfirlæknir á sóttvarnasviði Embættis landlæknis, staðfestir að vísað er til vandamála sem komið hafa upp hjá jarðvísindamönnum og þeim sem hafa sinnt eftirliti á staðnum. „En ekki er um alvarlegar eftirstöðvar að ræða vegna þessa eða varanleg einkenni,“ segir Þórólfur. „Þetta er það sem vitað er að getur gerst þegar styrkurinn er eins gríðarlegur og raun ber vitni við eldstöðina. Það er vegna þessa sem menn eru hræddir við að opna fyrir umferð þarna uppeftir,“ segir Þórólfur en slær þann varnagla að erfitt sé að segja til um hvort tilfelli sem þessi geta gert vart um sig síðar meir. „Ég myndi þó halda ekki, ef menn eru aðeins stuttan tíma í þessu gasi.“ Spurður um aukningu á einkennum frá öndunarfærum fólks víða um land segir Þórólfur að þetta sjáist bæði á meiri sölu asmalyfja og út frá sjúkdómsgreiningum frá heilsugæslustöðvum. „Ekki sé þó hægt að geirnegla að gasmengun frá gosinu sé um að kenna, en um marktæka aukningu sé að ræða nákvæmlega þá mánuði sem gosið hefur staðið yfir - eða frá 31. ágúst í fyrra. Þórólfur segir þessar niðurstöður allrar athygli verðar og nákvæmari heilsufarsrannsókn, sem er fyrirhuguð, greini frekar hvernig í málinu liggur.
Mest lesið Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Yfirheyra bandamenn sína í NATO Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Fleiri fréttir Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 Sjá meira