Þrettán milljónir króna renna til hjálparstarfs á Grikklandi Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 9. nóvember 2015 06:00 Rúmlega sex hundruð þúsund flóttamenn hafa flúið til Grikklands á árinu. Mynd/Rauði krossinn
Rauði krossinn á Íslandi hefur ákveðið að veita 13 milljónir króna til að fjármagna áríðandi hjálparaðgerðir vegna neyðarástands á Grikklandi og svara með því kalli Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans. Hjálparaðgerðirnar fela meðal annars í sér heilbrigðis- og mataraðstoð, dreifingu hreinlætispakka og aðstoð við að koma flóttafólki í samband við ættingja og ástvini. Um 600 þúsund hafa flúið til Grikklands á árinu og hefur straumurinn aukist sérstaklega síðustu þrjá mánuði. Þannig hafa yfir 300 þúsund manns komið til eyjunnar Lesbos, þar af um þriðjungur í október síðastliðnum, en eyjan er aðeins um tveir ferkílómetrar að stærð. Starfsfólk og sjálfboðaliðar gríska Rauða krossins hafa undanfarna mánuði komið hjálpargögnum til þeirra sem á þeim þurfa að halda en sökum gríðarlegs álags undanfarna mánuði er fjárhagslegt bolmagn gríska Rauða krossins takmarkað og þarfnast hann því fjárhagsaðstoðar frá öðrum landsfélögum. Rauði krossinn á Íslandi sendi á dögunum, í fyrsta sinn á þessari öld, sendifulltrúa á vettvang til lands innan Evrópu þegar Páll Biering, dósent í geðhjúkrunarfræði, hélt til flóttamannabúða norska Rauða krossins við landamæri Makedóníu. Auk þess að sinna þar sálfélagslegum stuðningi flóttafólks starfar hann við að þjálfa gríska sjálfboðaliða til þess að veita slíkan stuðning.
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglinn í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Sjá meira