Tónlist

Nýtt textamyndband frá OMAM: Tvíburarnir Erna og Hrefna túlka

Stefán Árni Pálsson skrifar
Íslenska ofurhljómsveitin Of Monsters and Men var rétt í þessu að gefa út nýtt textamyndband við lagið Wolves Without Teeth af plötunni Beneath the Skin, sem kom út 8. júní í sumar.

Hljómsveitin hefur undanfarið haft þann vana á að gefa alltaf út textamyndband við lögin og fengið þekkta Íslendinga í verkefnin. Að þessu sinni má sjá tvíburana Hrefnu Kristrúnu og Ernu Kristínu Jónasdætur túlka lagið.

Þær voru einmitt framan á símaskráni fyrr á þessu ári og hefur töluvert verið fjallað um þær í erlendum fjölmiðlum, the Guardian og Boredpanda.

Hér að neðan má sjá myndbandið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×