Innlent

Ráðherra um fráfarandi stjórnarformann RÚV: „Mikil eftirsjá að honum“

Birgir Olgeirsson skrifar
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra.
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra. Vísir
„Hann sagði mér frá þessu í morgun að hann væri að hugleiða þetta,“ segir Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, um Ingva Hrafn Óskarsson sem hefur sagt sig úr stjórn Ríkisútvarpsins en Ingvi Hrafn gegndi stjórnarformennsku þar.

„Mér kemur þetta í sjálfu sér ekki á óvart. Eins og hann tekur fram í yfirlýsingu sinni er hann störfum hlaðinn sem lögmaður og hefur þurft að setja mikinn tíma í þessi verkefni frá því hann tók þarna við. Ég hef fullan skilning á því að hann þurfi að forgangsraða sínum tíma, eins og hann segir í yfirlýsingu sinni. Aftur á móti er mikil eftirsjá að honum úr þessu starfi og ég veit að hann og útvarpsstjórinn hafa átt mjög gott samstarf. Ingvi Hrafn hefur verið vakinn og sofinn yfir þessu verkefni eins og ég vissi að hann myndi verða þegar hann var valinn,“ segir Illugi um þessi tíðindi.

„Ég vil færa fram þakklæti mitt til hans fyrir vel unnin störf. Ég tel að hann, stjórnin og starfsmenn Ríkisútvarpsins hafi unnið alveg frábært starf við að ná tökum á rekstri Ríkisútvarpsins og náð eftirtektarverðum árangri.“

Hann segir næsta verkefni á dagskrá að velja nýjan stjórnarformann. „Ég er svo sem ekkert byrjaður að hugleiða það sérstaklega en það er það sem bíður okkar,“ segir Illugi. Spurður hvort það sé eitthvað sem muni gerast á næstu vikum segir hann enga ástæðu til að draga það neitt sérstaklega en segir þó ekkert ákveðið í þeim efnum á þessari stundu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×