Innlent

Háspennulína til kynningar

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Tilgangur Sprengisandslínu er sagður að bæta raforkukerfi landsins.
Tilgangur Sprengisandslínu er sagður að bæta raforkukerfi landsins. vísir/stefán
Til 17. nóvember liggur frammi til kynningar hjá Skipulagsstofnun tillaga Landsnets að matsáætlun svokallaðrar Sprengisandslínu, 220 kílóvolta háspennulínu milli Norður- og Suðurlands. Allir geta gert athugasemdir við tillöguna fyrir lok kynningartímans.

Á meðan drög að matsáætluninni voru í vinnslu barst 31 athugasemd.

„Og hefur tillagan nú verið endurskoðuð út frá þeim ábendingum og lögð inn til til málsmeðferðar hjá Skipulagsstofnun,“ segir á vef Landsnets.

Framkvæmdin er umdeild. Hafa umhverfisverndarsamtök og ferðaþjónustufyrirtæki talið háspennulínur bitna á ímynd Íslands sem lands ósnortinna víðerna. Landsnet segir tilganginn að bæta raforkukerfi landsins, „en óstöðugleiki í rekstri byggðalínunnar og takmarkanir á orkuafhendingu standa orðið í vegi fyrir atvinnuuppbyggingu og byggðaþróun víða á landinu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×