Innlent

Tveir handteknir vegna heimilisofbeldis

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/hari
Tveir voru handteknir í nótt í tveimur útköllum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna heimilisofbeldis, annars vegar í Vesturbæ og hins vegar í Hafnarfirði. Báðir mennirnir voru í annarlegu ástandi og voru þeir látnir gista fangageymslur.

Þá voru tveir handteknir grunaðir um innbrot og eignaspjöll í félagsheimili við Rafstöðvarveg. Þeir gista báðir fangageymslu fyrir rannsókn máls. Að sama skapi var einn handtekinn í Garðabæ grunaður um að hafa brotið rúðu. Sá var í annarlegu ástandi og einnig vistaður í fangageymslu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×