Innlent

Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir þrettán mismunandi brot

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Lögreglan hafði oft og mörgum sinnum afskipti af manninum.
Lögreglan hafði oft og mörgum sinnum afskipti af manninum. Vísir/KTD
Maður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir þrettán mismunandi brot. Var hann ákærður fyrir fimm umferðalagabrot, eitt fíkniefnabrot, fjórar tilraunir til þjófnaðar og þrjá þjófnaði. Maðurinn á að baki langan afbrotaferil og hefur samtals verið dæmdur í 25 ára fangelsi frá árinu 1985.

Þann 9. september sl. var fyrirhugað fyrirtaka í Héraðsdómi Reykjaness vegna þriggja brota Unnars Sigurðar Hansens sem áttu sér stað í með nokkurra daga millibili í febrúar sl. Var hann ákærður fyrir að hafa brotist inn í Apótekið að Garðatorgi þar sem hann stal lyfjum að verðmæti 24.589 króna.

Hann var einnig ákærður fyrir að hafa brotist inn á veitingastaðinn Serrano að Nýbýlavegi og stolið þaðan peningaskúffu úr sjóðsvél. Jafnframt var hann ákærður fyrir að hafa ekið bifreið undir áhrifum fíkniefna en lögregla stöðvaði hann 3. febrúar 2015 og mældist hann 750 ng/ml af amfetamíni og 35 ng/ml af metamfetamíni í blóði hans.

Við fyrirtökuna óskaði ákærði hinsvegar eftir fresti þar sem lögreglan væri með fjölmörg mál á hendur honum í rannsókn. Vildi hann að hægt yrði að ljúka öllum kærumálum í sama dómsmáli.

Tíu mismunandi fíkniefnabrot og þjófnaðir bættust við

Þann 27. júní 2015 braust hann inn í Flóamarkaðinn að Nýbýlavegi 8 í Kópavogi og stal þar ýmsum smámunum á borð við kertastjökum, kveikjara, skríni, spilakúlum, vasapela, trékrús, bikar og styttu af svartri hendi. Samtals voru munirnir að verðmæti 320.900 krónur.

Við bættust nokkur umferðarlagabrot fyrir að keyra bifreið án ökuréttinda og/eða undir áhrifum fíkniefna. Einnig braust hann í félagi við annnan mann inn í íbúð viðð í fjölbýlishúsi að Sléttahrauni í Hafnarfirði. Lögreglan greip þó þá báða glóðvolga við þjófnaðinn.

Unnar játaði brot sín og var dæmdur í þriggja ára fangelsi og til greiðslu alls sakarkostnaðar, 570.201 krónu auk þóknunnar skipaðs verjenda síns.



Skoða má dóminn í heild sinni hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×