Innlent

Sluppu ómeidd úr bílveltu í Mosfellsbæ

Mosfellsbær
Mosfellsbær fréttablaðið/GVA
Engin meiddist alvarlega þegar bíl var ekið utan í háan gangstéttarkant og síðan á umferðarmerki með þeim afleiðingum að bíllinn valt. Þetta gerðist í Mosfellsbæ laust fyrir klukkan eitt í nótt og er bíllinn mikið skemmdur.

Þá voru tveir ökumenn teknir úr umferð fyrir ölvunarakstur og var annar próflaus á ótryggðum bíl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×