Stærsta sérverslun með bútasaumsefni í Evrópu Sæunn Gísladóttir skrifar 9. nóvember 2015 06:00 Guðfinna segir að galdurinn við að halda rekstri gangandi í svona langan tíma sé hvað þau hjónin séu samhent. vísir/gva
Í Mörkinni er vefnaðarvöruverslunin Virka sem státar af því að vera stærsta bútasaumsverslun í Evrópu og ein sú stærsta í heimi. Í dag er verslunin með sex til átta þúsund tegundir af ströngum til bútasaums, en til samanburðar er stærsta bútasaumsverslun Ástralíu með um það bil níu þúsund tegundir. Hjónin Guðfinna Björk Helgadóttir og Helgi Þór Axelsson eru eigendur Virku og hafa rekið hana í 39 ár. Hjónin hafa átt stóran þátt í því að kynna bútasaum fyrir Íslendingum. „Við komum með bútasauminn til Íslands árið 1978, og tókum þátt í heimilissýningu í Laugardagshöllinni sem sló algjörlega í gegn. Þá byrjaði ég að kenna alveg á fullu og kenndi á hverju kvöldi á veturna í mörg ár,“ segir Guðfinna. Hjónin hafa árlega sótt bútasaumssýningu í Bandaríkjunum frá 1979 og eru einu verslunareigendurnir sem hafa komið á hverju ári. „Margar búðir hafa komið öll árin en hafa skipt um eigendur. Bútasaumsverslanir skipta heilmikið um eigendur því þetta er svo mikil vinna, þú þarft að vera að kenna og þú þarft að vera að sauma sýnishornin,“ segir Guðfinna. Frá árinu 1994 hefur Guðfinna boðið erlendum hópum upp á bútasaumsnámskeið. Það hefur reynst afar vinsælt. „Við erum með mikið af erlendum hópum sem plana ferðir hingað og við erum búin að fá fyrirspurnir fram á næsta vor,“ segir hún. Ferðamennirnir koma víðs vegar að, allt frá Bandaríkjunum til Ástralíu. Guðfinna segir stærstu hópana koma frá Svíþjóð og Noregi. Verslunin býður auk bútasaums upp á mikið úrval af fataefnum. „Fólk er að koma frá útlöndum og kaupa það líka. Konur sem koma til að heimsækja bútasaumsdeildina enda oft með því að kaupa heilmikið af fataefnum því þær hafa aldrei séð annað eins úrval.“ Aðspurð segir Guðfinna að galdurinn við það að halda rekstri gangandi í svona langan tíma sé hvað þau hjónin séu samhent. „Þetta hefur verið rosa mikil vinna hjá okkur en líka svo skemmtilegt.“ Spurð um framtíð verslunarinnar segir Guðfinna þau hjónin lítið hafa íhugað hana. „Ætli ég verði ekki hérna með göngugrind níræð? Svo framarlega sem við hjónin getum tekið okkur frí inni á milli,“ segir Guðfinna að lokum.
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira