Rauði krossinn og Eimskip endurnýja samning til fimm ára Birgir Olgeirsson skrifar 17. nóvember 2015 10:58 Hér má sjá þau Guðmund Jóhannsson, starfandi framkvæmdastjóra Rauða krossins, Gylfa Sigfússon, forstjóra Eimskipafélagsins, Svein Kristinsson, formann Rauða krossins, Helgu G. Halldórsdóttur, verkefnisstjóra fjáröflunar Rauða krossins, Hildi B. Hilmarsdóttur, sviðsstjóra samskiptasviðs Rauða krossins og Örn Ragnarson, verkefnisstjóra fatasöfnunar Rauða krossins.
Eimskip, Eimskip Flytjandi og Rauði Krossinn á Íslandi hafa undirritað samning um áframhaldandi samstarf á sviði fatasöfnunar og flutninga. Frá árinu 2009 hefur Eimskip stutt við mannúðarstarf Rauða krossins með aðstoð við fatasöfnun á yfir 80 afgreiðslustöðum Flytjanda um land allt og flutninga á notuðum fatnaði og vefnaðarvöru til Evrópu. Alls hefur Eimskip flutt um 10 þúsund tonn af fatnaði fyrir Rauða krossinn. Einnig er fatasöfnunin mikilvæg fjáröflun til mannúðarstarfs, þar sem hluti fatnaðar er seldur áfram eða endurnýttur á annan hátt. Sveinn Kristinsson, formaður Rauða krossins á Íslandi, er hæstánægður með stuðning Eimskips og að farsælt samstarf haldi áfram, en samningurinn er til fimm ára: „Stuðningur Eimskips er Rauða krossinum ómetanlegur og gerir okkur kleift að halda úti metnaðarfullum verkefnum á sviði fatasöfnunar, fataúthlutunar og dreifingar. Þetta samstarf hefur verið til fyrirmyndar í gegnum árin og það er einstaklega jákvætt og hvetjandi fyrir stöndug fyrirtæki að sýna samfélagslega ábyrgð með þessum hætti,“ er haft eftir Sveini í tilkynningu um samninginn. Gylfi Sigfússon forstjóri skrifaði undir samninginn fyrir hönd Eimskipafélagsins. Hann fagnaði einnig endurnýjun samningsins og sagði við undirritunina að það skipti félagið afar miklu máli að vera gildandi á sviði mannúðarmála og ekki síst á þeim tímum sem tímum sem við nú lifum á. Mikil þörf er fyrir hjálp samtaka eins og Rauða krossins víðs vegar um heim og sé það Eimskipafélaginu bæði ljúft og skylt að koma að slíku starfi.
Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Enn eitt innbrotið í miðbænum Innlent Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Erlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Erlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Fleiri fréttir Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Sjá meira