"Þetta var bráðfyndin og ótrúleg tilviljun“ Atli Ísleifsson skrifar 8. nóvember 2014 22:07 Anna Sigrún segist ekki hafa verið í beinu sambandi við breska manninn enda sé kona hans sú virka í stuðningshópnum. Vísir/GVA „
Það var náttúrulega ekkert gaman að fá þetta en þetta er mögnuð tilviljun,“ segir Anna Sigrún Baldursdóttir, starfsmaður á skrifstofu forstjóra Landspítalans. Anna Sigrún fékk heilablæðingu þann 5. apríl síðastliðinn og komst nýverið að því að maður í Bretlandi, sem fæddur er sama dag og ár og hún, hafi einnig fengið sömu gerð af heilablæðingu, sama dag og hún. „Það eru náttúrulega ekki allir sem fá heilablæðingu, og ekki þessa tegund, þannig að þetta er ótrúleg tilviljun. Sjálf fékk ég heilablæðingu þegar ég var stödd í Orlando ásamt fjölskyldunni. Við vorum í Harry Potter-tæki í Universal Studios-skemmtigarðinum þegar þetta kom upp. Það var auðvitað mikið drama, en það gengur mjög vel,“ segir Anna Sigrún. Anna Sigrún segist vera í sérstökum stuðningshópi á netinu fyrir fólk sem hefur fengið slíkar heilablæðingar. „Svo átti ég afmæli, og einhver mundi eftir því og óskaði mér til hamingju með það. Þá kemur í ljós að þessi maður átti líka afmæli sama dag, fæddist sama ár, og fékk þessa gerð af heilablæðingu, sama dag og ég. Það er dálítið mögnuð tilviljun. Svo tók maðurinn minn sig til í gærkvöldi og reiknaði líkurnar á þessu. Og þær eru líka svona stjarnfræðilegar, 1 á móti 70 milljónum eða 0,0000014%. Mér fannst þetta mjög fyndið.“ Anna Sigrún segist ekki hafa verið í beinu sambandi við þennan breska mann, enda sé það kona hans sem sé virk í stuðningshópnum. „Ef ég skil hana rétt þá hefur hann orðið fyrir talsvert meira hnjaski en ég. Það hefur samt gengið allt í lagi. Hann er bóndi og starfar sem slíkur.“ Anna Sigrún segir að sér hafi sjálfri gengið mjög vel, þó að frekar langan tíma taki að jafna sig eftir svona. „En þetta var ótrúleg tilviljun og bráðfyndið. Ég hefði þó frekar viljað vinna í lottóinu, enda meiri líkur á því en að þetta eigi sér stað.“Fréttablaðið tók viðtal við Önnu Sigrúnu í maí síðastliðinn þar sem rætt var við Önnu Sigrúnu um daginn þegar hún fékk heilablæðinguna.
Tengdar fréttir Fékk heilablæðingu en með hugann við vinnuna Anna Sigrún Baldursdóttir fékk heilablæðingu í fjölskyldufríi í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Hún var við dauðans dyr en notaði þó tímann óspart til að bera sjúkrahúsleguna í Bandaríkjunum saman við aðstöðuna hér heima. 8. maí 2014 08:47 Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Sjá meira
Fékk heilablæðingu en með hugann við vinnuna Anna Sigrún Baldursdóttir fékk heilablæðingu í fjölskyldufríi í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Hún var við dauðans dyr en notaði þó tímann óspart til að bera sjúkrahúsleguna í Bandaríkjunum saman við aðstöðuna hér heima. 8. maí 2014 08:47