75 milljónir í síðdegishressingu Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 18. desember 2014 08:15 Hér gæða leikskólabörn á Garðaborg sér á þorramat. Hlutfallslega minna er áætlað á börn á leikskólum en til að mynda á frístundaheimilum borgarinnar. Fréttablaðið/Haraldur Jónasson
Foreldrar munu greiða 178,5 krónur á dag fyrir síðdegishressingu barna sinna á Frístundaheimilum borgarinnar á meðan 280 krónur fara í fæði leikskólabarna.Foreldrar hafa á árinu greitt 75 milljónir í síðdegishressingu og af þeirri upphæð hafa 62 milljónir farið í matarinnkaup. Samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2015 hækka gjaldskrár frístundaheimila og frístundaklúbba um 3,4% frá og með 1. janúar 2015. „3,4% er áætluð hækkun neysluvísitölu útreiknuð í júlí 2014 fyrir árið 2015 þegar vinna við fjárhagsáætlun stóð yfir,“ segir Kristján Gunnarsson, fjármálastjóri Skóla –og frístundasviðs hjá Reykjavíkurborg. Bæði vistunargjald og gjald fyrir síðdegishressingu hækka um 3,4%. Vistun 5 daga hækkar í 12.350 úr 11.940 og síðdegishressing í 3.570 úr 3.450 krónum. Gjald fyrir síðdegishressingu verður því 178,5 krónur á hvert barn. Síðdegishressing er oftast niðurskornir ávextir, grænmetisbitar eða brauð. Töluvert hefur verið rætt um kostnað máltíða í vistun barna á vegum Reykjavíkurborgar. Aðeins eru áætlaðar 280 krónur til fæðis leikskólabarns „Útreikningar okkar matar- og næringarsérfræðinga gera ráð fyrir að matur skv. ráðleggingum landlæknis um næringargildi séu 382 krónur á dag. Við stefnum að því til lengri tíma litið að ná landlæknisviðmiðum en erum í dag að setja kr. 280 í leikskólamatinn,“ segir Kristján. Í fæði leikskólabarna er innifalin morgunhressing, hádegismatur og síðdegishressing. Kristján segir 75% kostnaðar fara í hráefni, 10% í búnað og annan rekstur vegna matar og 15% í laun. Foreldrar hafa á þessu ári greitt 75 milljónir til 14. desember í ár í síðdegishressingu. Af þeirri upphæð hafa 62 milljónir farið í matarkaup sem eru 83% af tekjunum.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Sjá meira