Enginn dýralæknir á Austurlandi næstu vikurnar Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 18. desember 2014 20:50 Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir. Mynd/Magnús Hlynur Hreiðarsson/Getty
Matvælastofnun hefur á undanförnum mánuðum auglýst í þrígang eftir dýralæknum til að þjónusta Fljótsdalshérað, Fljótsdalshrepp, Borgarfjarðarhrepp, Seyðisfjarðarkaupstað og Fjarðabyggð (að undanskildum Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði) en án árangurs. Þjónustusamningurinn verður áfram laus til umsóknar, en stofnunin telur að breyta þurfi reglum til að finna lausn sem stuðlar að því að tryggja dýralæknaþjónustu á svæðinu til lengri tíma. Tveir dýralæknar á svæðinu eru sjálfstætt starfandi, en hafa nú tilkynnt um fjarveru til 4. janúar 2015. Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir, og aðrir fulltrúar stofnunarinnar hafa fundað með landbúnaðarráðherra og öðrum starfsmönnum ráðuneytisins og gert grein fyrir þeirri alvarlegu stöðu sem fyrirsjáanleg var og er nú komin upp eftir að starfandi dýralæknar á þessu svæði fóru í tímabundið leyfi. Þá hefur verið óskað eftir breytingu á reglugerð um dýralæknaþjónustu. „Matvælastofnun harmar þá stöðu sem dýraeigendur á Austurlandi standa frammi fyrir meðan enginn dýralæknir er starfandi á svæðinu eða sækir um þann samning sem í boði er og á meðan stjórnvöld hafa ekki gefið svar um þá framtíðarlausn sem stofnunin hefur lagt til,“ segir í tilkynningu frá stofnuninni. Héraðsdýralæknir Austurumdæmis, Eyrún Arnardóttir, er nú í fæðingarorlofi en samið hefur verið við Hákon Hansson á Breiðdalsvík og jafnframt héraðsdýralæknana Ólaf Jónsson í Norðausturumdæmi og Gunnar Þorkelsson í Suðurumdæmi um að sinna störfum héraðsdýralæknis. Ásdís Helga Bjarnadóttir, dýraeftirlitsmaður í Austurumdæmi, tekur við öllum erindum sem berast til umdæmisskrifstofunnar og deilir þeim út til réttra aðila.
Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Bíll valt í Kópavogi Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi Innlent Fleiri fréttir Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Sjá meira