Sakamálalög eiga ekki við dómara Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. júlí 2014 00:01 Samherji vill meina að Ingveldur hafi brotið lög með að heimila húsleit hjá Samherja, bæði í Reykjavík og á Akureyri. Vísir/Pjetur
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur vísað frá kæru dótturfélags Samherja á hendur Ingveldi Einarsdóttur hæstaréttardómara. Félagið, Polaris Seafood, kærði Ingveldi í júní fyrir að hafa í mars 2012 veitt Seðlabankanum húsleitarúrskurði en við málsmeðferð úrskurðanna telur félagið að hún hafi vanrækt könnun lagaskilyrða, ekki boðað fulltrúa varnaraðila til þinghalds og hvorki þingmerkt né varðveitt skjöl málanna. Í niðurstöðu lögreglustjóra segir að samkvæmt lögum sé það ekki dómari heldur sá aðili sem framkvæmir hina ólögmætu rannsóknaraðgerð sem geti bakað sér refsiábyrgð. Þannig sé það Seðlabanki Íslands, sem í þessu tilfelli framkvæmdi húsleitina, en ekki dómarinn sem lögin ná yfir. Í því ákvæði hegningarlaga, sem Samherji telur að dómarinn hafi gerst sekur um, er sérstaklega tilgreint að ef dómari beitir ólöglegri aðferð til að meðal annars framkvæma ólöglega leit eða leggja að ólögum hald á skjöl varði það sektum eða fangelsi. Þá kemur einnig fram í niðurstöðu lögreglunnar að það að vanrækja þingmerkingu skjala eða varðveislu þeirra varði ekki við ákvæði refsilaga. Telur lögreglan því ekki efni til að hefja rannsókn út af kærunni. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, er óánægður með niðurstöðuna og hyggst kæra ákvörðunina til ríkissaksóknara. „Þetta er athyglisvert að lögreglan telji, eftir nokkurra daga athugun, að það sé engin refsiheimild sem nær yfir það þegar gögn hverfa í jafn alvarlegu máli og þegar húsleit og haldlagning er heimiluð. Við munum að sjálfsögðu kæra þessa ákvörðun til ríkissaksóknara,“ segir Þorsteinn í samtali við Fréttablaðið.
Tengdar fréttir Samherji fær ekki afhend gögn úr húsleit Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag kröfu Samherja og tengdra aðila um að gögnum úr húsleit verði skilað. 30. júní 2014 16:30 Óljóst hvort dómar eigi að geyma gögn Dómstólar landsins viðhafa ekki sama verklag í hlerunar- og húsleitarmálum. Allir aðrir dómstólar en Héraðsdómur Reykjavíkur geyma öll gögn. Dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur segir vafa leika á hvernig túlka skuli lögin en segist fara að lögum. 30. júní 2014 07:00 Hæstaréttardómari kærður fyrir brot í opinberu starfi Dótturfyrirtæki Samherja hefur lagt fram kæru á hendur Ingveldi Einarsdóttur hæstaréttardómara fyrir brot á almennum hegningarlögum. Hún er kærð fyrir vanrækslu í starfi við veitingu úrskurðar um húsleit. 23. júní 2014 07:00 Lögreglan eini aðilinn sem geti upplýst Dómarinn sem dótturfélag Samherja kærði fyrir brot í opinberu starfi veitti úrskurði til leitar og haldlagningar hjá 29 mismunandi fyrirtækjum á rúmlega tveimur tímum frá því honum barst beiðni frá Seðlabankanum. 24. júní 2014 09:02 Mest lesið Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Fleiri fréttir Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sjá meira
Samherji fær ekki afhend gögn úr húsleit Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag kröfu Samherja og tengdra aðila um að gögnum úr húsleit verði skilað. 30. júní 2014 16:30
Óljóst hvort dómar eigi að geyma gögn Dómstólar landsins viðhafa ekki sama verklag í hlerunar- og húsleitarmálum. Allir aðrir dómstólar en Héraðsdómur Reykjavíkur geyma öll gögn. Dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur segir vafa leika á hvernig túlka skuli lögin en segist fara að lögum. 30. júní 2014 07:00
Hæstaréttardómari kærður fyrir brot í opinberu starfi Dótturfyrirtæki Samherja hefur lagt fram kæru á hendur Ingveldi Einarsdóttur hæstaréttardómara fyrir brot á almennum hegningarlögum. Hún er kærð fyrir vanrækslu í starfi við veitingu úrskurðar um húsleit. 23. júní 2014 07:00
Lögreglan eini aðilinn sem geti upplýst Dómarinn sem dótturfélag Samherja kærði fyrir brot í opinberu starfi veitti úrskurði til leitar og haldlagningar hjá 29 mismunandi fyrirtækjum á rúmlega tveimur tímum frá því honum barst beiðni frá Seðlabankanum. 24. júní 2014 09:02